Menntamál - 01.09.1936, Page 37

Menntamál - 01.09.1936, Page 37
MENNTAMÁL 115 En þetta er væntanlega aðeins stundarviðhorf, einskonar vaxtarverkir,“ heldur Sjöholm áfram. „Og svo mikið er vist, að við erum þegar komnir svo langt út á frelsisbraut- ina, að það er ekki liægt að snúa lil sama lands aftur. Kennslutæki, handhækur og önnur starfsskilyrði siðari tima eru of viðurkennd og hagkvæm til þess að liætt verði að færa sér þau í nyt. Það er því alveg víst, að lexíunámið kemur aldrei aftur, og það sem unnizt hefir, mun liafa varanlegt gildi.“ Við ræðum nú enn um stund um skólamál á víð og dreif og skoðanir Sjöholms á ýmsum atriðum þeirra. „Eg er svo hrifinn,“ segir hann, „af þessum ummælum Westlings: „Þegar gagnið sameinast gleðinni, þá verður lifið há- líð.“ Hugsaðu þér annars,“ heldur Sjöholm áfram, „hvað við kennararnir tökumst milda ábyrgð á hendur. Hvert barn lifir sínu lífi aðeins einu sinni. Bernska þess kemur aldrei aftur. Er ])ví ákaflega áríðandi að hjálpa þeim til að gera liana sem fullkomnasta. Til þess þarf fyrst og fremst gagnið, áhuginn og ánægjan að geta sameinast í námi barnanna. Þegar talað er um ánægju og áhuga, þá táknar það engan veginn það, sem venjulega er kallað skemmtun, heldur hitt, að blundandi, innri kraftur sálar og líkama leysist úr læðingi, en samfara því er gleði og fullnægjutil- finning. Kennarinn þarf að hafa fullkomið frelsi til þess að vinna fyrir frelsi barnanna. Það gerir aftur þá kröfu til lcennarans, að liann hafi víða útsjón yfir þarfir og tilgang skólans. Hann þarf að liafa sáfræðilega innsýn, þekkingu á lögmálum barnasálfræðinnar og yfirlit yfir uppeldis- starfið i heild sinni. Skólinn má ekki vera of kaldur. Við eigum að vernda það þjóðlega og taka það í þjónustu upp- eldisins. Sömuleiðis að bera virðingu fyrir trúarbrögðun- um, en forðast kennisetningar. Easlheldni við kennisetn- 8*

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.