Menntamál - 01.09.1936, Síða 63
MENNTAMÁL
141
hann fluttisl til ísafjarðar hefir hann jafnan varið miklu
af tima sínum til kennslu. Hann stóð nokkur ár fyrir
kvöldskóla, sem Umf. Árvakur hélt, og vinnustofa Jjans
var jafnan opin fyrir ungt fólk, er þangað vildi koma til
að vinna og nema. Allmörg undanfarin ár hefir hann ver-
ið fastur handavinnukennari barnaskólans.
1908 stofnaði Guðmundur fyrsta ungmennafélagið á
Vestfjörðum. Siðan hefir hann starfað í þeim félagsskap
af lifi og sál, með eindæma ósérhlífni og fórnfýsi, svo að
j>ar hefir liklega enginn maður annar unnið meira starf.
1924—’33 var hann sambandsritari U. M. F. í., og var
kjörinn heiðursfélagi sambandsins, er hann lét af því
starfi. — Auk ]jess hefir hann unnið mikið fyrir unglinga-
reglu Góðtemplara.
A. Sigm.
Sjálfstjórn skólaharna.
----- Framh.
Maður, sem heimsótti Lane og komst í náin kynni við
stofnun hans, segir meðal annars:
Iiomer Lane yrði hrifinn, ef þér færðuð honum dreng,
sem hefði verið tekinn fastur hvað eftir annað,eða slúlkn,
er væri sönn að sök fyrir alvarleg lögbrot, þjófnað í
búðum eða þess háttar. Og ef þér gætuð svo bætt því
við sem aukameðmælum, að stúlkan hefði ráðizt á lög-
regluna eða framið annað álíka ofbeldisverk, þá myndi
gleði hans ná hámarki sínu.
Eins og þér sjáið, þá vill Lane ekki aðhyllasl þá skoð-
un, að þessir unglingar séu glæpamenn. Umhverfið og
uppeldið hafa gert þá, það sem þeir eru. Ogef samskonar
áhrif halda áfram að verka á þá, fer svo að lokum, að
þeir verða hættulegir fyrir þjóðfélagið. En sú staðreynd,
að þeim liefir telcizl að komast langt á vegi lög-