Menntamál - 01.09.1936, Side 74

Menntamál - 01.09.1936, Side 74
152 MUNNTAMÁL nauðsynin á því, að hefja sönginn í þann virðingarsess, seni hon- um ber i skólunum. Féiagið væntir þess, að allir barnakennarar, sem stunda söng- kennslu, sjái sér hag í þvi að styðja félagið. En aðrir kennarar ættu einnig að gefa gaum að störfum þess. Um inntökuskilyrði í félagið segir svo í lögum þess: „Sérhver söngkennari, sem lokið hefir kennaraprófi og er kennari við opinberan barnaskóla, sem studdur er af ríkinu, getur orðið félags'maður, þó svo, að hann hafi minnst í eitt ár haft á hendi söngkennslu við barnaskóla.“ Auk þess eru reglur um aukafélaga. Stjórn félagsins skipa: Frið- rik Bjarnason söngkennari í Hafnarfirði, formaður, Jón ísleifs- sön söngkennari við Miðbæjarskólann í Reykjavík, gjaldkeri, og Páll Halldórsson söngkennari við Austurbæjarskólann í Reykja- vík, ritari. Eru þeir fúsir til að veita allar nánari upplýsingar um félagið, einnig hverskonar upplýsingar um þessi mál, sem þeim er unnt. ■* P. H. Leiðbeiningabækur lianda kennnrum. Fram á siðustu ár hefir sú trú ríkt í skólamálum vor íslend- inga, að hver maður gæli að sjálfsögðu kennt öðrum það, sem hann kynni sjálfur. Vér þékktum ekki þann vanda, sem felst í því, að kenna öðrum. Þótt flestum fyndist, að kennarinn yrði :ið bera nokkurt skyn á það, sem hann kenndi, var hinu enginn gaumur gefinn, hvort hann kynni að kenna eða ekki. Kennslu- kunnáttan var allsendis ójjekkt hugtak og er það lijá mörgum enn í dag. í samræmi við þennan ágalla kennslunnar cr líka sá brestur, sem mest er fundinn til foráttu hinum svo kallaða „bókskóla". Hann vill veita nemendum sem mesta jmkkingu, en mistekst það, af því að starfsaðferðir hans eru ekki í samræmi við jmoskastig barnanna. Bókskólanum sést jafnvel yfir hinn auðsæjasta til- gang námsins. Nálægt 90% allra skólabarna eiga síðar að vinna fyrir sér með höndunum, ]). e. stunda erfiðisvinnu. Samt kennir bókskólinn þeim, eins og þau ættu að verða vísindamenn. Þetta ósamræmi milli námsþarfa og kennsluhátta hlýtur að hefna sín á öllum þorra barna. Þótt skólarnir tækju við vel gefnum börn- um, skiluðu þeir aftur klaufskum og fákunnandi unglingum — í

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.