Menntamál - 01.12.1936, Blaðsíða 42
200
MENNTAMÁL
Vilhjálmur Þór er óvenjulegur afbragðsmaður. Enda
þótt liann sé ennþá kornungur, þá er hann löngu þjóð-
kunnur orðinn sem einn hinn allra snjallasti og stórvirk-
asti fjármálamaður landsins. Og nú hefir hann, með
því að beita sér fyrir hinum stórliuga menningarfram-
kvæmdum og áætlunum K.E.A., skijjað sér i fremstu
röð meðal menningarfrömuða þjóðarinnar. Er fágætt,
að slíkir koslir fari saman í svo ríkum mæli, og mun
mikilla heilla mega af Vilhjálmi vænta, fyrst og fremst
fyrir Eyfirðinga, en jafnframt fyrir alla þjóðina.
Snorri Sigfússon, skólastjóri, er einn þeirra manna,
sem mest hefir að heimavistarskólamálinu unnið. Hefir
Snorri á þrennan liátt unnið að málinu. Hann á, svo
sem áður er sagt, sæti í stjórn menningarsjóðs K.E.A.,
og hefir áreiðanlega elcki látið sitt eftir liggja þar, mál-
inu til framdráttar. Þá liefir hann, svo sem kunnugt er,
unnið að því, að koma allsherjar hreyfingu á heima-
vistarskólamálið, með hinu mikilsverða starfi sinu sem
formaður fræðslulaganefndarinnar. 1 áframhaldi af því
starfi ferðaðist liann um Eyjafjörð og Skagafjörð og
munu þær ferðir vissulega liafa átt sinn þátt í því, að
vekja hinn almenna og vaxandi áliuga, sem talið er
að ríki nú þar nyrðra um þessi mál. Loks hefir Snorri
og starfsfélagar hans við barnaskóla Akureyrar í ná-
grenni skóíans slcapað aukið og vaxandi traust og trú
almennings á starfi og möguleikum barnafræðslunnar.
Þá liafa alþingismenn Eyfirðinga, þeir Bernliarð og
Einar, lagt mikið og gott til málanna. Þeir eiga, eins
og þegar er sagt, báðir sæti, hvorutveggja í senn, í
stjórn menningarsjóðs og i stjórn kaupfélagsins. Bern-
harð var um skeið kennari og hefir alltaf verið vin-
samlegur kennurum á þingi, t.d. í fyrra eindreginn fylgis-
maður hinna nýju fræðslulaga. Einar Árnason er for-
maður K.E.A. og einhver hinn farsælasti og ágætasti
áhrifamaður og leiðtogi Eyfirðinga um langt skeið.