Menntamál - 01.12.1936, Blaðsíða 31
MENNTAMÁL
189
sem er í mildu áliti og er sóttur af nemendum frá Hol-
Jandi. Þýzkalandi og eilthvað frá Englandi, enda eru það
enskir kvekarar, sem fyrir skólanum standa.
Ég kom þarna tvisvar í sumar, skoðaði skólann úti og
inni og átti langt tal bæði við forstöðukonuna, sem er
þýzk og ráðskonuna, sem mun vera hollenzk. í höllinni
eru stórir salir, sem vænta má. Hafa þeir nú verið gerðir
að kennslustofum, en stóru, gömlu góbelínsteppin lianga
enn á veggjunum, ásamt myndum af forfeðrum van Pall-
andtanna; þótti mér hvorugt eiga vel við nýtizku skóla.
Forsalurinn, sem er gríðarlega stór, liefir verið tekinn
fj'rir horðstofu, en eldliús og önnur borðstofa eru i kjall-
aranum. Uppi á loftinu eru svo kennaraíhúðir og eitthvað
býr þar af börnum.
Skólinn er aðallega heimavistarskóli, og dvelja börnin
þar árið um kring, nema um 6 vikur að sumrinu. Sækja
hann rúmlega 100 börn. Úl frá sjálfri höllinni ganga tvær
hliðarálmur, sin hvoru megin; höfðu þær verið hyggðar
upp og teknar til íbúðar á dögum Stjörnufélagsins. I
annari álmunni eru nú íhúðir barnanna aðallega; hin álm-
an liefir verið tekin fj'rir verkstæði og geymslu. Yar þar
stórt leirhnoðunarherbergi og smiðastofa meðal annars.
Var þarna i sumar sýning á Iiandavinnu og teikningum
barnanna. Dáðist ég mjög að, hve fallega hluti jafnvel
mjög ung hörn bjuggu til úr leirnum, og merkilega ná-
kvæm upphleypt landakort. Þó voru teikningarnar eða
málverkin ef til vill enn merkilegri, sérstaklega lijá litlu
börnunum. Sagði kennarinn mér, að málara- eða teikni-
hæfileikinn sýndist sérstaklega tilheyra mjög ungum
aldri, ef börnin fengju þá að gefa sig að því, og hyrfi svo
aftur að nokkru leyti hjá mörgum, þegar þau eltulst og
fengju fleiri áliugamál. Allt er þetta að mjög litlu leyti
gert eftir fyrirmyndum, af því að starfið á fyrst og fremst
að vekja imyndunarafl og sköpunarmátt barnsins.
I kringum höllina eru afarstórir garðar, ])ar sem rækt-