Menntamál - 01.12.1936, Blaðsíða 61
MENNTAMÁL
219
fyrst um ávirðingarnar við syndarana sjálfa, félaga
þeirra, áður en vegið var aftan að þeim varnarlausum,
svo sem hér var gert. Eigi verður hirt um að nefna nöfn
postula þessara að svo stöddu, en vilji þeir ræða við
og um starfsbræður sína fyrir opnum tjöldum, er þeim
héra með boðið rúm til þess í Menntamálum, þó með
því skilyrði, að rök og ritháttur verði samboðinn sið-
uðum og menntuðum mönnum. Ritstj.
Tillögur um starfstilliögun
heimavistarbarnaskóla i sveitum.
Aðalsteinn Eiríksson, skólastjóri, Reykjanesi, hefir að tilhlutun
fræðslumálastjórnarinnar gert tillögur uni nómskrá og starfstil-
högun heimavistarskóla. Eru tillögur A. E. samdar með liliðsjón
af starfi Reykjanesskólans, og þess vegna öðrum þræði lýsing á
starfstilhögun þessa merka skóla, ýmist eins og starfið er, eða
er ætlað að verða i náinni framtíð. Hér á eftir birtist orðrétt
nokkur hluti tillagna A. E., en miklu er sleppt, sakir rúmleys-
is í blaðinu.
Vor- og sumarstörf: Við alla heimavistarskólana sé
smá gróðurstofa. Nemendur vinna síðari hluta vetrar
að undirbúningi jarðvegs, umplöntun í vermireiti í apríl,
maí, síðan plantað út í garða. Unnið verði i gróðurreit
skólans minnst tvo tíma á dag. Hver nemandi liafi sinn
eigin garð á heimili sínu, fái plöntur úr gróðurstofu
skólans og vinni þetta garðyrkjustarf undir umsjá skól-
ans, enda sé það einn hluti af skólastarfinu. Farnar
verði minnst tvær ferðir yfir sumarið um héraðið, safn-
að náttúrugripum, teknar myndir o. s. frv.
Námskeið og félagsstörf: Tilvalið er, að heimavistar-
skólarnir taki á starfskrá sína ýmsa námskeiðastarf-
semi og félagsstörf. Skólinn verði miðstöð liéraðsins,