Menntamál - 01.12.1936, Blaðsíða 76
234
MENNTAMÁL
BANDARÍKIN.
Elsti háskóli Ameriku, Harvard i Gambridge, Massachusetts,
hélt nýlega hátiðlegt 300 ára afmæli. 12.000 fyrverandi nemend-
ur og 000 gestir frá háskólum víðsvegar i veröldinni voru við-
staddir hátíðahöldin. 02 visindamenn frá ýmsum þjóðum voru
gerðir að heiðursdoktorum. Lokaræðuna hélt Roosevelt forseti,
sem sjálfur var eitt sinn nemandi við Harvard. Lagði hann áherzlu
á það, að á þessari nýtízku galdraöld, þegar hugsanafrelsi væri
bannfært í mörgum löndum, yrði það hlutverk Ameríku og Har-
vardháskóla, að halda kyndli sannleikans hátt á lofti. Hlutverk
sannleikans væri háleitt og mikið, og sannleikurinn myndi sigra
að lokum.
ÞÝZKALAND.
I tilefni 550 ára afmælis háskólans i Heidelberg var áletrun
á framhlið háskólabyggingarinnar breytt. í stað „Hinum lif-
andi anda“ (Dem lebendigen Geist) var skráð „Hinum þýzka
anda“.
Árið 1933 sóttu 115.722 stúdentar þýzka háskóla. Árið 1935
voru þeir 89.093.
RÚSSLAND.
Árið 1914 var fjöldi nemenda í framhaldsskólum, á landsvæði
því, er Sovét-samhandið nær yfir, ca. 900.000, en 1935 5.800.000.
1914 sóttu hina 11 háskóla Rússlands 125.000 stúdentar. Nú eru
í landinu 21 háskóli með 470.000 stúdentum.
Við háskólann í Lundúnum er í undirbúningi uppeldisfræði-
leg miðstöð fyrir allt hrezka heimsveldið.
Námskeið fyrir kennara
i London 25. jan. til 16. júni 1937. Dr. Maria Montessori stjórn-
ar og kennir.
í janúar næstk. hefst 22. alþjóðlegt Montessori kennaranám-
skeið í London.
Tvennt er einkum nýstárlegt við þetta námskeið: 1) Dr. Mon-
tessori gefur þar i fyrsta sinn heildaryfirlit yfir uppeldiskerfi
sitt frá fæðingu fram yfir háskólaaldur. 2) í stað þess að byggja
skólakennsluna á námskrá, er litið á uppeldið sem hjálp í lifs-
baráttunni á ýmsum þroskaskeiðum bernsku og æsku.
Stofnað er til námskeiðsins af Hinu alþjóðlega Montessorifélagi.
(Samkv. bréfi frá International Montessori Association
til Menntamála).