Menntamál - 01.12.1942, Blaðsíða 12

Menntamál - 01.12.1942, Blaðsíða 12
74 MENNTAMÁL kort, kennslumyndir, forteikningar o. þh. Oft er gott að geta hengt upp teikningar nemenda og önnur blöð, sem engir hankar eru á. Mætti þá að vísu næla blöðin með teiknibölum í listann ofan við töfluna. Hitt er miklu betra, að hafa nokkrar pappírsklemmur með fjöðrum við hönd- ina, klemma það á blaðið og hengja síðan upp. Eins má nota venjulegar þvottaklemmur með gormi, en til þess þarf að vera borað gat á annað skaftið á þeim, svo að hægt sé að hengja þær upp. Eins mætti auðvitað negla eða skrúfa nokkrar klemmur hér og þar á töflulistann. Væru þær þá jafnan til taks, er festa þarf upp hankalaus blöð. Skýringarteikningar og forteikningar eru mjög þýðing- armikið atriði í kennslu. Þær eru oft dregnar á svörtu töfluna með hvítri eða mislitri krít, en þurrkaðar síðan burtu, þegar lokið er notkun þeirra, eða nota þarf töfluna til annars. — Stórum hagkvæmara er að draga slíkar teikningar, a. m. k. þær, sem vandaðar eru og mikla hafa þýðingu, á hvítan pappír. Teikningar á töflunni eru nei- kvæðar, hvítar á svörtu, en nemandinn á hægra með að skynja þær og skilja svartar á hvítu, og þannig teiknar hann eftir þeim, ef það er gjört. Töfluteikningunni er „tjaldað til einnar nætur“. Hún er þurrkuð burtu, jafn- skjótt og lokið er við að nota hana, og jafnvel fyrr, ef nota þarf töfluna til annars. Svo þarf að eyða verki í að teikna nýja mynd, þegar næst þarf að skýra sama efni. Ef teiknað er á pappír, endist myndin lengi, og má nota hana aftur og aftur með sæmilegri meðferð. Teikna má þannig fjölbreyttar skýringarmyndir og kort í öllum fræði- greinum skólanna, en slíkt getur haft stórfellda þýðingu, og verið vænlegra til skilnings en mörg orð. Nota má ýmsar tegundir af hvítum, gljáalausum pappír til þess að teikna á, jafnvel prentpappírsarkir. En bezt er að hafa svonefndan ,,maskínupappír“, eða hvítan umbúða- pappír, sem er gljáalaus og grófgjörður a. m. k. á annarri hlið. Hvor tveggja þessi pappír fæst í rúllum. Langhágan-

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.