Menntamál - 01.12.1942, Page 15
MENNTAMÁL
77
una svo víða, sem æskilegt þykir og rúm er til. Nota má
þenna útbúnað til þess að festa upp sýningartjald, ef
skuggamyndir eru sýndar í kennslustofunni.
Við norðurvegg stofunnar eða austurvegg ættu að vera
skápar fyrir söfn stofunnar, áhöld, efnisbirgðir, og við-
fangsefni nemenda. Það er mikið mein í mörgum kennslu-
stofum, hve þar skortir hirzlur til að geyma í þá hluti, sem
til eru, eða til fallast, og gott getur verið að hafa þar við
höndina. Ættu slíkir skápar jafnan að vera smíðaðir um
leið og ný kennslustofa er byggð, nægilega rúmgóðir til
frambúðar, og haganlega og smekklega fyrir komið. Veitir
ekki af, að skápar nái yfir allan norðurvegg stofunnar,
nema þar sem dyrnar eru. Væri hæfilegt, að hafa 100 cm.
háan og 40 cm. þykkan neðri skáp. Efst í honum væri röð
af um 16 cm. djúpum skúffum, ekki mjög stórum, en
neðan við nokkur hæfilega stór hólf fyrir vinnubókablöð,
nógu mörg til þess, að hægt sé að hafa eina tegund í hólfi.
Þar þurfa að vera geymsluhólf, eða (heldur) skúffur, fyrir
nemendur, nógu mörg til þess, að hver nemandi í stof-
unni geti haft hólf sér. Þá eru hillur fyrir aðrar efnis-
birgðir stofunnar, og ef til vill rúm fyrir eitthvað af söfn-
um hennar. Skúffurnar væri gott að hafa misjafnlega
stórar. í sumum þeirra gæti verið ýmis áhöld og efni, sem
til eru í stofunni, t. d. reglustikur í einni, skæri í annarri,
túskur og litir í hinni þriðju, o. s. frv. í öðrum gætu verið
ýmis söfn, og verður nánar vikið að því bráðum. Neðri
skápnum væri þægilegast að loka með skothurðum. —
Ofan á honum væri svo efri skápur, t. d. 90 cm. hár og 30
cm. þykkur, með þremur hillum. Vel fer á, að sá skápur
sé opinn, eða með skothurðum úr gleri. Það er heimilis-
legra og hlýlegra en tréhurðir. í skáp þessum færi vel að
hafa bókasafn stofunnar, náttúrugripasafn og áhöld, hvert
sér, og þannig raðað, að prýði sé að. — Uppi á skápnum
gætu svo staðið ýmsir hlutir til prýði: stengur með fánum,
jarðlíkan o. s. frv.