Menntamál - 01.12.1942, Blaðsíða 20

Menntamál - 01.12.1942, Blaðsíða 20
82 MENNTAMÁL Frá fálmi til markvíss starfs. Þeim, sem fylgzt hafa með þróun skólamála okkar hin siðari ár, dylst ekki, að hér er vakinn allalmennur áhugi á eflingu verklegs náms í barna- og unglingaskólum landsins. Áhuga þessa gætir furðu víða, og eigi síður utan en innan kennarastéttarinnar. Svo virðist sem menn séu að rumska til skilnings á því, að í verklega náminu kunni að vera fólginn verömætur þroska- og menntagjafi, sem vert sé að sinna og hlúa að, betur en gert hefir verið til þessa. Það mun þó sannast sagna, að fylgi það, sem málefni þetta nú nýtur svo víða, styðst hjá mörgum frekar við eðlisávísun en þekkingu, rök eða reynslu. Er því engin furða, þótt margt af því, sem hér hefir verið brotið upp á hin síðari ár, sé með nokkrum óvaningsbrag, fálmkennt og laust í reipunum. Að vonum hafa líka mörg víxlsporin verið stigin, margri krónunni kastað á glæ og margri stundinni eytt til lítils gagns, — ef ekki beinlínis til tjóns. Það er mér þó fjarri skapi, að fordæma allt, sem hér hefir verið gert á þessu sviði. Margt af því er mjög mark- vert, og vænlegt til þroska. En margt líka harla lítils virði og sumt hygg ég, að stefni beinlínis til ófarnaðar. Ég hygg því, að nú sé tímabært að staldra við stundar- korn, meta fengna reynslu og marka stefnuna, sem halda skal. Vænti ég þess þó einkum, að kennarar, sem þetta mál varðar fyrst og fremst, taki nú verklega námið almennt til gaumgæfilegrar íhugunar og umræðu, og geri sér glögga grein fyrir því, hvað þeir vilja, hvað kenna skuli, hvers- vegna og hvernig. Með þessu móti einu fáum við hafið markvíst, jákvætt starf og sneytt hjá frekari mistökum, sparað orku, tíma og fé. Grundvöllurinn. Til þess að fá svarað spurningunni um tilgang verklega námsins verðum við fyrst að skilgreina hlutverk uppeldis-

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.