Menntamál - 01.12.1942, Qupperneq 21

Menntamál - 01.12.1942, Qupperneq 21
MENNTAMÁL 83 ins og skólanna, og þá fyrst og fremst barnaskólanna. Skil- greining þessi verður forsenda að aðgerðum okkar. Þýzki uppeldisfræðingurinn heimsfrægi, Georg Kerschen- steiner, sem látinn er fyrir nokkrum árum, sagði, að til- gangur uppeldisins og hins almenna undirbúningsskóla, væri: „1. die Aufgabe der Berufsbildung oder doch deren Vor- bereitung, 2. die Aufgabe der Versittlichung der Berufsbildung, 3. die Aufgabe der Versittlichung des Gemeinwesens innerhald dessen der Beruf auszuúben ist.“*) í þessari skilgreiningu fellst í rauninni það, að megin- hlutverk uppeldisins, — og þá líka barnaskólans, — sé, að skapa sem hæfasta þjóðfélagsþegna, og vinna þannig að framvindu þjóðfélagsins í áttina til hinnar æðstu siðrænu (morölsku) fullkomnunar. Hlutverk skólans er því ekki sérfræðilegs, heldur almenns eðlis. Það er ekki það, að met- þjálfa börnin í einni eða annari sérgrein, heldur hitt, að ala og þjálfa með þeim þá siðrænu meginþætti, sem sam- eiginlegir eru öllu siðmætu starfi, hvort sem er andlegt eða líkamlegt. Það er auðsætt, að allir þessir þrír þættir í starfi skól- ans, eru hver öðrum nátengdir. Skólinn getur ekki rækt eitt þessara hlutverka, nema hann sinni hinum í sama mæli. Hann fær ekki bætt um ágalla þjóðfélagsins, nema hann hafi bætt um og aukið siðrænt gildi vinnubragða einstaklinganna, en það verður aftur á móti ekki gert nema með bættu starfsuppeldi. Skólinn verður því að líta á skjól- stæðinga sína, — börnin, — sem lifandi hluta af lifandi heild, — þjóðfélaginu, — og stefna í starfi sínu að því lokamarki, að skapa hér á jörðu hið fullkomna menningar- samfélag mannanna. *) „1. starfsmenntunin, eða a. m. k. undirbúningur hennar, 2. siðgun starfsmenntunarinnar, og 3. siðgun samfélagsins, sem nýtur starfsins."

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.