Menntamál - 01.12.1942, Síða 29

Menntamál - 01.12.1942, Síða 29
MENNTAMÁL 91 tækniþroska, sem öllum er nauðsynlegur,sem handræn störf stunda. Formskyn barna þroskast í viðskiptum þeirra við form þeirra hluta, sem í kringum þau eru, en mest þó við sjálfa handfjöllun efniviðarins. Af námsgreinum barna- skólanna eru verklegu greinarnar, — auk teikningar, — bezt fallnar til eflingar þessum þroska. — Með engum hætti getur skólinn betur eflt nýtni, hagsýni og sparsemi barnanna, en með réttri kennslu í verklegum greinum (matreiðsla, garðrækt, saumakennsla, smíði). Prédikanir kennarans um kosti hagsýninnar fara inn um annað eyra barnsins og út um hitt, en sjón er sögu ríkari þegar barnið á sjálft að skila ákveðnum árangri úr afmældu efni. Þá sér það og reynir sjálft, hvers virði hagsýni er. Kennsla verklegu námsgreinanna. í rauninni skiptir minna máli, hvaða verkleg námsgrein það er, sem kennd er; mestu varðar, hvernig hún er kennd. (En hér verður ekki rætt um einstök framkvæmdaatriði, stundaskrána, útbúnað vinnustofunnar, eða verkefni. í næsta hefti Menntamála mun ég væntanlega fá tækifæri til að ræða þetta nánar). Hér að framan hefi ég marglýst hinu tigna, mikilvæga hlutverki, sem verklega náminu er ætlað. Hlutverk þetta gerir strangar kröfur til kennarans. Hann verður að vera gagntekinn af því. Hann verður sjálfur að eiga hinn sið- ræna starfsþroska, hlutlægni í orði og athöfn, nákvæmni og vandvirkni, sem hann á að vekja með börnunum. En auk þessa verður hann vitanlega að kunna vel til verka þeirra, sem hann er að kenna. Verkleg kennsla, sem er í höndum kennara, sem sjálfur er óvandvirkur eða kærulaus, vinnur beinlínis gegn þróun siðræns starfsþroska og gerir úr barninu verri þjóðfélags- þegn en það ella mundi verða. — — Fjöldi af iðnaðarmönnum hins gamla skóla eiga öll einkenni hins góða verknámskennara. Sömuleiðis margir

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.