Menntamál - 01.12.1942, Qupperneq 31

Menntamál - 01.12.1942, Qupperneq 31
MENNTAMÁL 93 lega náminu á bekk með höfuðnámsgreinum skólans og kenna verklegar námsgreinar sem sjálfstæðar sérgreinar. Engu að síður er hægt, og raunar æskilegt, að hafa samvinnu milli verklegu greinanna og annara námsgreina skólans. (Smíði — teikning og reikningur; garðyrkja — náttúrufræði; handavinna telpna — teikning o. s. frv.) En til þess að verklega kennslan sé framkvæmanleg og nái tilgangi sínum verður að búa skólana betur úr garði en nú er almennt. Jafnvel það er þó ekki einhlitt. Hin full- komnasta vinnustofa er harla lítils virði, nema undir stjórn og leiðsögn hæfra kennara. Ber því að leggja megináherzlu á menntun kennaraefnanna. Að lokum vil ég leyfa mér að tilfæra eftirfarandi kafla úr erindi, sem ég flutti 1938 um verklega menntun barna og unglinga og sent var Alþingi, ásamt tillögum um þau efni: „í öllum barnaskólum vorum er nauðsynlegt að auka mjög verklega námið, bæði fyrir pilta og stúlkur. Enginn barnaskóli má án vera góðrar vinnustofu eða — stofa. Sérhver barnaskóli í kaupstað þarf að eignast sinn skóla- garð, þar sem börnin fái lært undirstöðuatriði garðræktar. í sveitum eiga börnin að koma sér upp görðum heima hjá sér, en kennarar skólanna og sérstakir ráðunautar, leið- beina um ræktun þeirra. M. ö. o.: í barnaskólunum ber að leggja undirstöðuna að vinnuuppeldi barnanna. Verði nauð- synlegt, þess vegna, að draga úr einhverju öðru, sem nú er veitt, verður það að ganga út yfir það i hinu bóklega námi, sem minna er um vert, — og það er eigi fátt.“ Luðvíg Guðmundsson.

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.