Menntamál - 01.12.1942, Page 34

Menntamál - 01.12.1942, Page 34
96 MENNTAMÁL minnkandi orðaforði barna og unglinga á skólaaldri. — Röng notkun þágufalls í ýmsum orðasamböndum hefir nokkuð lengi verið landlæg í ýmsum héruðum landsins, og hefir þar hvert hérað átt sína röngu þágufallsmynd, en nú er svo að sjá sem þessi leiða málvilla fari sem farsótt um landið, en þó mun hún ennþá meir bundin við sjávar- þorp en sveitir. Kennararnir standa ráðþrota, því að hér duga engar málfræðireglur, sem skiljanlegar eru börnum og lítt þroska ungmennum. Og það, er reynsla mín, að ef barnið hefir ekki málsmekk eða eyra fyrir réttu og röngu í þessu efni, og ef ekki tekst að skapa þann smekk í skóla eða á heimili, þá virðist örvænt um að ráða bót á þessari málvillu, en sú er þó trú mín að lestur fornbókmennta og yfirleitt lestur góðra bóka, sé sterkasta sókn og vörn í þessu máli, en að því kem ég betur síðar. En um útbreiðslu þessarar leiðu málvillu vil ég segja eitt dæmi. Fyrir skömmu kom út barnabókin „Örkin hans Nóa“. — Kennari, sem kenndi íslenzku í efsta bekk barnaskóla fékk bókina í hendur og tók eftir því, að fyrir neðan eina mynd- ina í bókinni stóð þessi setning: „Úlfaldanum langar til að drekka“. Þessi málvilla hafði einhvern veginn smogið í gegnum greipar þeirra, er prófarkir lásu, og bendir það óneitanlega á, að smekkur og næmi sé farið að sljófgast hjá fleirum en börnunum í þessu efni. — Kennarinn skrif- aði setninguna upp á töfluna og sagði börnunum að þessi setning stæði undir einni myndinni í bókinni, og bað þau að segja sér, hvort nokkuð væri athugavert við hana. Lengi þögðu börnin, en að lokum sögðu tvö til þrjú þau greindustu, að þau héldu að þarna ætti að standa: „Úlf- aldann langaði til að drekka“, en önnur héldu að setningin væri alveg rétt, kennarinn væri aðeins að leika á þau. En þótt þessi beygingarvilla sé skaðleg íslenzku máli og þrautleiðinleg fyrir þá, sem óspilltan málsmekk hafa í þessu efni, þá tel ég þó, að með minnkandi orðaforða ung- menna sé þó ennþá meiri vá fyrir dyrum. Og þar þarf að

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.