Menntamál - 01.12.1942, Side 37

Menntamál - 01.12.1942, Side 37
MENNTAMÁL 99 lenzk alþýSa á 18. og 19. öld átti engar barnataækur á svo- kölluðu barnamáli, en þó auðnaðist íslenzkri alþýðu og islenzkum menntamönnum á 19. öldinni að hreinsa og fegra móðurmálið, og endurvekja þann stílhreina kraft, sem okkar gáfuðu forfeður höfðu gefið því. Börn 19. aldarinnar áttu ekki annars kost en gera sér listaverk fornaldarinnar, íslendingasögurnar og kvæði góðskálda samtíðarinnar, að barnabókum, en sljófguðu ekki hugsun sína á svokölluðum barnabókmenntum, sem hvorki verka á ímyndunarafl eða hugmyndaflug. — Það er skoðun mín, að allt, sem börnin lesa þurfi að verka á ímyndunar- afl þeirra, og auka hugmyndaflugið. Efnið þarf að gagn- taka hugann, þá skilja þau orðin; þannig lærðu börnin á síðari hluta 19. aldarinnar að lesa fornsögurnar, ,,Þúsund og eina nótt“, og ljóð Jónasar og Bjarna, og ég held að enn þurfi að byggja á slíkum grunni, ef móðurmálið okkar dýra á ekki að bíða tjón. Ég tel það skaðlegt að skapa í íslenzku þjóðlífi sérstakt barnamál, sem börnin lesi og tali á vissu aldursskeiði, en þegar þau stækki, eigi þau svo að læra mál fulloröna fólksins, — þessi stefna er innflutt og áhrif frá ensku- mælandi þjóðum, sem hafa lent í því öngþveiti að kljúfa mál sitt í mál alþýðu og menntamanna, — en í þessari stefnu er sama reginvillan og þegar móðirin talar tæpi- tungu og bjagað mál við barnið sitt, og gleymir þá þeirri staðreynd, sem felst í þessum forna talshætti: „að því læra börnin málið, að það er fyrir þeim haft“, og ef málið er haft fyrir þeim fábreytt og bjagað, hvort sem það er í bók eða viðtali, þá verður mál þeirra eins. Ég gat þess áðan, að allir heföu veitt því athygli, hve orðaforði og skilningur barna ykist við dvöl þeirra í nýju umhverfi, t. d. ef kaupstaðarbarn fer til sumardvalar í sveit, og ég minnti líka á það, að barnaskólarnir þyrftu í starfi sínu að læra af þessari reynslu. — Skólinn þarf

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.