Menntamál - 01.12.1942, Side 38

Menntamál - 01.12.1942, Side 38
100 MENNTAMÁL að flytja barninu nýtt umhverfi og nýtt umræðuefni. Ég held, að ef til vill skorti okkar barnaskóla það mjög, að sérstaklega sé þar oft hreint talmál og framsögn. Gamla yfirheyrsluaðferðin hafði þann kost fyrir móðurmálið, að hún æfði börnin í því að skýra skilmerkilega frá því, sem þau vissu i námsgreininni, annaðhvort með eigin orðum eða bókarinnar. — Vinnubókakennsluaðferðin, sem að mörgu hefur mikla kosti fram yfir gömlu yfirheyrsluað- ferðina, skortir það, að börnin fái æfingu í móðurmálinu í sambandi við spurningar og svör, — en vissulega þarf skólinn að bæta móðurmálskennslunni þetta upp. í bekkj- um 7-—10 ára barna þyrfti beinlínis að hafa talæfingar í sambandi við lesæfingarnar, þar sem börnin æfðu sig í því að segja frá daglegum viðburðum, þar sem kennarinn stjórnaði samtaíinu og leiðlétti málvillur og röng orða- sambönd. — Nóg er tilefnið til umræðu, veðurfarið, skipa- komur. leikir barnanna o. f 1., en í eldri bekkjum þyrfti sér- staka tíma, þar sem lesin væru og sögð æfintýri, leikrit, fornsögur og listræn skáldrit, innlend eða útlend, og börn- unum þegar á þroskaaldrinum 11—13 ára leiðbeint frá barnabókunum að fögrum og sögulegum bókmenntum þroskaðra manna. Ég vil til stuðnings því að slíkt sé hægt, segja frá til- raunum mínum og reynslu um þetta efni. Þegar ég ungur hóf kennslu við barnaskóla, varð ég þess var að gamlir sögufróðir, bókhneigðir menn, höfðu margt að athuga við kennslu skólanna, en þó einkum það, að börnin lærðu ekki að lesa nytsamar bækur, eins og til dæmis fornsögurnar. — Ég taldi þetta þá stafa af aftur- haldi og mótþróa gegn barnafræðslunni, en varð þó að viðurkenna það með sjálfum mér, að börnin hefðu enga aðstöðu eða löngun til að lesa gullaldarrit íslendinga, og þótt þau iærðu allgott ágrip af íslandssögu, og könnuðust við hetjur og spekinga úr fornsögunum, þá hefðu þau al- veg farið á mis við þann þroska, sem 19. aldar börnin

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.