Menntamál - 01.12.1942, Blaðsíða 39

Menntamál - 01.12.1942, Blaðsíða 39
MENNTAMÁL 101 öðluðust við það, að lesa sögurnar sjálf og heyra þær lesnar á hinu stílhreina fornmáli og drekka í sig anda þeirra og efni. Ég fann, að það var eins og að berja höfðinu við steininn að prédika fyrir börnunum og segja: „Lesið þið fornsögurnar“. Ég minntist þess þá, að ekki hafði ég sem barn farið verulega að lesa fornsögurnar, fyr en ég hafði heyrt þær lesnar á kvöldvökunum. Ég fór því sömu leiðina, og farið var með mig. Ég fór að segja og lesa fornsögurnar í sérstökum tímum, sem nefndust á stundaskránni „sögð saga“. — Venjulega hafði ég einn til tvo tíma á viku og sagði langar sögur, sem entust mér tvo til þrjá mánuði. Aðallega hefi ég sagt sögur, sem gerast við Breiðafjörð og jafnan haft íslandskort við hendina. Undanfarna vetur hefi ég sagt breiðfirsku sögurnar: Lax- dælu og Eyrbyggju, og ennfremur Grettissögu, Njálu og Gunnlaugssögu ormstungu. Oftast hefi ég lokið við að segja tvær langar sögur á vetri hverjum, og læt svo líða einn til tvo vetur, þar til ég segi þær aftur. Yfirleitt hafa börnin hlustað vel á sögurnar og hlakkað til þessara tíma og sum þau duglegustu hafa útvegað sér sögurnar og lesið jafnóðum og ég hefi sagt þær, en nokkuð hefir borið á því, að drengirnir hefðu meiri ánægju af þessum frásögn- um en stúlkunar. Ég hef einnig reynt sömu aðferð með úrvalsskáldrit. — í fyrra vetur sagði ég 12—13 ára börn- um Vesalingana eftir Vigtor Hugo, öll 5 heftin með lítils- háttar úrfellingum, og entist sagan allan veturinn með einni stund í viku hverri, en oft voru mínúturnar í þeirri stund ekki taldar, þar sem það var síðasti tíminn, og sögu- hetjan oft stödd í alvarlegum mannraunum. Biskupinn og Jean Valjean urðu lifandi persónur í huga barnanna og þau töluðu um þá og framkomu þeirra í sögunni eins og þau töluðu um foringja styrjaldarinnar. — Ég hefi líka gert tilraunir með að lesa úrvals leikrit fyrir börnin. Und- anfarna vetur hefi ég smátt og smátt lesið leikritin: Óska- stundina, Fjalla-Eyvind, Nýársnóttina og Skugga-Svein.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.