Menntamál - 01.12.1942, Síða 50
112
MENNTAMÁL
Laugarnesskólinn.
Við tal á börnum í deildum skólans Um miðjan desember reyndust
að stunda nám í skólanum alls 574 börn. Er það um hundrað börnum
fleira en mest var í skólanum síðastliðinn vetur.
Fastir kennarar skólans eru nú 10, auk skólastjóra og forstöðukonu
heimavistar, en 6 stundakennarar starfa þar að auki við skólann í
vetur.
Húsnæðisþrengsli
skólanna í Reykjavík er orðin mjög bagaleg. Hefur Skildinganes-
skólinn haft verstan aðbúnað og ekkert fast skólahús, aðeins leigu-
húsnæði í íbúðarhúsum, síðan skólinn var stofnaður árið 1936. Skóla-
stjórinn, Arngrímur Kristjánsson, hefur látið í té eftirfarandi upp-
lýsingar um aðbúnað skólans í húsnæðismálunum:
Skólinn gat ekki tekið til starfa að þessu sinni fyrr en 10. nóv., og
lágu til þess eftirgreindar ástæður:
Aðalaðsetur skólans síðan 1936 hefur verið við Baugsveg 7, en það
hús liggur sunnan til í skólahverfinu. Yngri börnunum af Holtinu
hafði að vísu verið kennt í húsi við Smirilsveginn síðustu árin.
Um miðjan aprílmánuð s. 1. barst bæjaiyfirvöldunum áreiðanleg
vitneskja um, að enn fleiri hús yrðu rifin og flutt úr hverfinu, og
sýnt þótti, að húsið við Baugsveg (syðra skólahúsið) yrði innikróað
af rennibrautum. Var því ekki um annað að gera en flýja með skól-
ann vestur með firðinum og út á Grímsstaðaholt, og var hafizt handa
um það á áliðnu sumri. Enn er ekki til fulls lokið þeim breytingum
og nýbyggingu, er gera þurfti, til þess að skólinn fengi á ný viðunan-
legan samastað.
Eins og að líkindum lætur, hefur skólinn beðið tilfinnanlega hnekki
vegna þeirra hrakninga, er hér hefur verið lýst, og kennir þar um
frumbýlingsskapar og ónógrar festu, og mun eðlilega engum vera
þetta ljósara en skólastjórninni og starfsliði skólans.
— Skólahús Miðbæjarskólans var upphaflega ætlað 600—700 börn-
um; þar eru nú um 1500 börn. í Laugarnesskóla hefur kennsla fallið
niður í nokkrum námsgreinum, sökum þrengsla. Og Austurbæjarskól-
inn, sem er stærstur skóli á íslandi, er yfirfullur, svo að þrísetja
verður í sumar kennslustofurnar.
RITSTJÓRI: GUNNAR M. MAGNÚSS.