Menntamál - 01.08.1966, Page 30
116
MENNTAMÁL
fræðaprófs (10. bekkur) jafngildir námsefni til prófs úr 8.
bekk í Danmörku og Noregi.
Danskur gagnfræðingur hefur t. d. lesið eftirfarandi efni
umfram íslenzka gagnfræðinga:
a) Bogstavregning, geometri, plangeometri, grafisk frern-
stilling og grafiske lösninger.
b) Allt námsefni í 10. bekk (3 R), sem einna helzt er
sambærilegt við námsefni 4. bekkjar stærðfræðideildar í
íslenzkum menntaskóla.
Ef íslenzkur gagnfræðingur vildi ná Teknisk Realeksamen
í stærðfræði í Danmörku, þyrfti hann að sækja 13 kennslu-
stundir á viku í 10 mánuði. Teknisk Realeksamen er inn-
gönguskilyrði í „Adgangskursus“ við danska tækniskóla.
Nemendur í Noregi, sem lokið hafa Plan III tir 9. bekk,
hafa m. a. lesið eftirfarandi efni umfram íslenzka gagnfræð-
inga:
Geometri og romlære, bokstavregning, grafisk framstill-
ing.
Ef íslenzkur gagnfræðingur vildi ná Plan III í stærðfræði
í Noregi þyrfti hann að sækja 5 kennslustundir á viku í
10 mánuði. Við inngöngu í norska tækniskóla er krafizt
Plan III í stærðfræði.
2) Eðlisfrœði og efnafrœði.
Mynd 6 sýnir samanburð kennslustunda á viku í eðlis-
fræði og efnafræði. Fjöldi vikustunda á hverju ári er bor-
inn saman í töflu 1.
Myndir 4 og 5 sýna mat á námsefni í eðlisfræði og efna-
fræði í einingum á svipaðan hátt og námsefni í stærðfræði
var metið í mynd 2. Við val einingar var námsefni II. bekkj-
ar íslenzkra skóla (bók P. J. (15)) lagt til grundvallar og
annað námsefni metið í samræmi við það.
Athygli skal vakin á því, að myndir 4 og 5 sýna aðeins
bóklegt námsefni, en auk þess njóta danskir og norskir
nemendur mikillar sýnikennslu og framkvæma fjölda verk-