Menntamál - 01.08.1966, Page 80
166
MENNTAMÁL
skyldunámsstiginu, hafi þeir sömu undirbúnings-
menntun og kennararéttindi,
b) að kennsluskylda barnakennara verði lækkuð,
c) að barnakennarar verði svo vel launaðir, að þeir séu
eigi tilneyddir að vinna aukavinnu sér til lífsfram-
færis,
d) að kennarar, sem kenna á skyldunámsstigi, skuli hafa
lokið námi við Kennaraskóla íslands,
e) að stofnsett verði hið allra fyrsta iramhaldsdeild við
Kennaraskóla íslands hliðstæð kennaraháskólum er-
lendis,
f) að fullnægt verði lögum um að auglýsa árlega skóla-
stjóra- og kennarastöður, sem réttindalausir menn
gegna,
g) að skólastjórar 9 mán. skóla fái aukagreiðslu, sem nemi
einum mánaðarlaunum þeirra, vegna margháttaðra
starfa við frágang og undirbúning skólastarfsins,
h) að skólastjórar séu taldir með í tölu kennara við út-
reikning í launaflokka þeirra,
i) að námsstjórar verði í sama launaflokki og skólastjór-
ar fjölmennustu barnaskólanna, enda sé það þeirra
aðalstarf.
II.
19. fulltrúaþing S.Í.B. vekur athygli á þeirri nauðsyn,
að reynt verði hið fyrsta að sameina skylda starfshópa í
landssambönd með það fyrir augum, að samningsréttur
þeirra verði aukinn um launa- og kjaramál við ríkisvaldið.
Þingið felur því sambandsstjórn að vinna að því, að kann-
aður verði grundvöllur fyrir stofnun kennarasambands ís-
lands, sem að standi allir þeir kennarar, sem kennslurétt-
indi hafa að lögum. Hlutverk þess verði m. a.:
a) að vinna að bættri fræðslulöggjöf,
b) að eiga aðild að útgáfu kennslubóka,
c) að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum kennara,