Menntamál - 01.08.1966, Blaðsíða 67
MENNTAMÁL
153
nemendanna. Athugað skyldi, hvort rétt sé að skipta
nemendum eftir námsgetu, eins og mest hefur tíðkazt.
8. Tekin verði upp tvenns konar lokapróf í íslenzku og
reikningi til unglingaprófs, A-próf og B-próf.
9. Gagnfræðapróf verði samhæft. Verði upp teknar fleiri
tegundir gagnfræðaprófs og valgreinar hafðar þar, eftir
því sem við verður komið.
Menntunar- og réttindamál.
Takmark Landssambands framhaldsskólakennara í
menntunar- og réttindamálum er að kennarastéttin verði
sem bezt menntuð, og allir kennarar hafi full réttindi til
starfs síns samkvæmt lögum. Takmarki þessu vill L.S.F.K.
ná með því að beita sér fyrir eftirfarandi:
a) Setningu nýrra laga um menntun framhaldsskólakenn-
ara, er kveði skýrt á um námskröfur og réttindi, í stað
hinna óljósu ákvæða, er nú gilda,
b) að auðvelda fólki leiðina til B.A.-prófs eða hliðstæðrar
menntunar, m. a. með því að gera því kleift að stunda
námið með starfi að einhverju leyti,
c) að sett verði á stofn nefnd, er meti nám þeirra umsækj-
enda um kennarastöður, sem ekki hafa nægilegt nám
samkvæmt lögum til að öðlast starfsréttindi. Skal nefnd-
in bæði meta nám nýrra kennara og viðbótarnám það,
sem þeir afla sér. Nefnd þessi skal skera úr um það,
hvort um nægilegt nám til réttinda sé að ræða og hvað
á vanti,
d) að ríkisvaldið stofni til námskeiða, sumarskóla eða
kennaraháskóla fyrir framhaldsskólakennara, einnig þá,
sem um er fjallað í c-lið. Nefndin leggur áherzlu á,
að komið verði á fót framhaldsdeild við Kennaraskóla
Islands, sem sinni þessum verkefnum,
e) að öll sérgreinakennsla sé metin hliðstætt við aðra
kennslu til hæstu launa, og lög um menntun sérgreina-
kennara verði endurskoðuð,