Menntamál - 01.08.1966, Blaðsíða 92
178
MENNTAMÁL
Þá eru nýir gagníræðaskólar í Kópavogi, Keflavík, Nes-
kaupstað og síðasti áfangi gagnfræðaskólans á Akureyri. Af
barnaskólabyggingum eru þessar helztar: Kársnesskólinn í
Kópavogi, í Garðahreppi, Öldutúnsskólinn í Hafnarfirði,
Njarðvíkurskólinn og Sandgerðisskólinn. Ennfremur skólar
á Bíldudal, Flateyri, Bolungarvík, Hvammstanga, Reyðar-
firði, Stöðvarfirði, Seltjarnarnesi, Höfn í Hornafirði og
Ketilsstöðum í Mýrdal.
Þá er að nefna heimavistarskólana að Kleppjárns-
reykjum í Borgarfirði, Laugum í Dalasýslu, Laugum í
Reykjadal. Þá hefur Guðmundur teiknað allmarga skóla-
stjórabústaði, ennfremur sundlaugar, og félagsheimilið að
Egilsstöðum teiknaði hann. Af því, sem hér hefur verið
talið — og margt þó ótalið — má sjá, hve Guðmundur var
mikill afkastamaður og eftirsóttur teiknari.
Guðmundi var ekki nóg að gera teikningar að skólunum
og afhenda þær, heldur fylgdist hann eins vel með gerð
bygginganna og kostur var á. Þess vegna ferðaðist Guð-
mundur allmikið og áttum við oft samleið. Tókust brátt
með okkur góð kynni og ágætt samstarf, því að margs konar
þjónustu lét hann skólamálunum í té á vegum embættis
húsameistara ríkisins, sem ekki hefur verið getið hér, en
margir muna og þakka.
Gjörvulegur, velvirkur og mikilvirkur arkitekt er nú
horfinn af sjónarsviðinu. Hann hefur sett svip sinn á marg-
ar skólabyggingar hér á landi og aukið með því veg
embættis húsameistara ríkisins. Eg færi Guðmundi alúðar
þakkir fyrir ánægjulegt samstarf, vináttu og margvíslega
þjónustu í þágu skólamála hér á landi og veit ég, að þeir,
víðs vegar um landið, er notið hafa samstarfs og fyrir-
greiðslu Guðmundar, taka undir það með mér.
Guðmundur var kvæntur Ragnheiði, dóttur Jörgens Han-
sen, framkvæmdastjóra í Reykjavík. Dóttir þeirra, María,
hefur orðið landi sínu til sóma erlendis og foreldrum sín-
um til gleði. Helgi Eliasson.