Menntamál - 01.08.1966, Page 81
MENNTAMÁL
167
d) að vinna að bættum starfsskilyrðum kennara,
e) að vinna þannig að launamálum kennara, að þeir séu
ekki afskiptir í launakjörum í hlutfalli við aðrar
stéttir, sem sambærilega menntun hafa,
f) að gefa út sameiginlegt málgagn.
19. þing S.Í.B. leggur áherzlu á þá kröfu, að opinberir
starfsmenn fái fullan samningsrétt, þar með talinn verk-
fallsrétt. Þingið undirstrikar það, að Kjaradómur hefur
þegar glatað tiltrú ríkisstarfsmanna, og virðist augljóst, að
sanngirnissjónarmið hafi ekki ráðið dómum hans undan-
farið.
19. fulltrúaþing S.Í.B. skorar á stjórn B.S.R.B. að beita
sér fyrir, að afnumin verði vísitölubinding lána úr hinu
almenna lánakerfi ríkisins og vinna að því að tryggja rétt
opinberra starfsmanna til lána úr þeim sjóði.
19. fulltrúaþing S.Í.B. skorar á fræðslumálastjórn að láta
nú þegar gera reglur um greiðslur til kennara, er sækja
námskeið, sem haldin eru á vegum fræðslumálastjórnar.
Reglur þessar séu miðaðar við greiðslu eðlilegs ferða- og
uppihaldskostnaðar á hverjum tíma.
19. fulltrúaþing S.Í.B. felur stjórninni að vinna að því,
að stundakennarar fái sörnu réttindi og skyldur og aðrir
opinberir starfsmenn og njóti því sömu kjara um vinnu-
tíma og laun og fastráðnir kennarar.
19. fulltrúaþing S.Í.B. felur sambandsstjórn að lilutast til
um, að hjón, sem bæði greiða í lífeyrissjóð barnakennara,
ujóti sömu réttinda.