Menntamál - 01.08.1966, Blaðsíða 48
134
MENNTAMÁL
skilyrði til menntunar mælir þingið með ráðstöfunum þeim,
er nú skulu taldar:
1. Skólagjöld séu afnumin í öllum löndum.
2. Afnema skyldi allt kennslu- og námstækjagjald á öll- ,
um skólastigum.
3. Skattaívilnanir skyldu vera svo ríflegar, ásamt ýmiss
konar uppeldisaðstoð, að hverju barni sé gert fært að
auka menntun sína og stunda framhaldsnám án þess
að íþyngja fjölskyldu sinni.
4. Nemendur í sveitahéruðum skyldu eiga sömu náms-
kosta völ og þeir, sem búsettir eru í borgum, en til
þess þarf að fjölga skólum og heimavistum og afnema
allan ferðakostnað nemenda.
5. Einkum er nauðsyn á aðstoð við börn þeirra foreldra,
sem ekki geta séð þeim fyrir heppilegum námsskilyrð-
um, og koma þá þessi atriði til greina:
a) Almenn skólaskylda skyldi lengd til 16. aldursárs.
b) Endurskoða skyldi námsáætlanir og kennsluaðferð-
ir, þannig að til greina séu teknar sérþarfir hvers
barns í voru breytilega þjóðfélagi.
c) Skólinn skyldi leitast við að veita nemendum sem
fyllsta hlutdeild í verðmætum menningarinnar.
d) Skólar skyldu yfirleitt gerðir að dagvistarskólum.
e) Stefnt skyldi að því að minnka ljölda nemenda í
hverjum bekk, til þess að kennsla geti orðið árang-
ursríkari og nánari tengsl megi skapast milli kenn-
ara og nemenda.
6. Þess skyldi þó minnzt, að kennarar geta því aðeins
rækt aukna ábyrgð sína gagnvart þjóðfélaginu, að tala
kennara að hlutfalli við tölu bekkja í skólunum aukist
frá því, sem nú er, og starfsskilyrði kennara verði
bætt. i
IV. Til þess að verða við þörfum fjölskyldunnar í marg-
greindu þjóðfélagi nútímans, vill þingið benda á þessi at-
riði: