Menntamál - 01.08.1966, Blaðsíða 110
196
MENNTAMÁL
Á fundi sínum 11. marz sl. samþykkti stjórn S.Í.B. að
leita stuðnings allra þeirra félaga í Sambandi íslenzkra
barnakennara, sem vilja takmarka sjónvarpið á Keflavíkur-
flugvelli við herstöðina eina.
Sambandsstjórn sendi síðan undirskriftalista til stjórna
svæðasambandanna og einstaklinga á strjálbýlustu svæðun-
um. í Reykjavík skrifuðu undir 63,1% kennara, sem eru
félagar í S.Í.B. Niðurstöður liggja enn ekki fyrir utan af
landi, þar sem undirskriftir hafa verið að berast allt til
þessa.
e) Steina- og skeljasafn Ara Stefánssonar. Sambandinu
hefur borizt vegleg gjöf, steina- og skeljasafn, frá erfingjum
Ara Stefánssonar. Er hér um að ræða mikið safn skelja og
steina víðs vegar að. Guðmundur Sigvaldason, jarðefnafræð-
ingur, var fenginn til að annast greiningu steina- og berg-
tegunda, en Ingimar Óskarsson, grasafræðingur, greindi
skeljarnar. Safninu hefur verið komið fyrir í sýningarskáp-
um í húsakynnum sambandsins. Gefendum var boðið til
kaffidrykkju, þegar safnið var formlega afhent í marz sl.
f) Húseignin. Húseign sambandsins að Þingholtsstræti 30
var öll tekin til notkunar í þágu sambandsins á árinu 1965.
Var íbúðin máluð, húsgögn keypt bæði í fundaherbergi og
skrifstofu. Þá var íbúðin öll teppalögð. — Stéttarfélagi barna-
kennara í Reykjavík hefur verið leyfð afnot af fundaher-
bergi til stjórnarfunda.
g) Skrifstofuhald — starfsmaður. Ársæll Sigurðsson var
ráðinn starfsmaður S.Í.B. um mitt ár 1964, samkv. heimild
síðasta fulltrúaþings. Skrifstofan hefur verið opin tvo daga
í viku, tvo klt. í senn. Um sl. áramót lét Ársæll af störfum.
Hefur Svavar Helgason verið ráðinn í hans stað um óákveð-
inn tíma.
h) Menntamál. Starfsmannaskipti urðu í árslok 1963.
Broddi Jóhannesson skólastjóri, sem verið hafði ritstjóri