Menntamál - 01.08.1966, Síða 46
132
MENNTAMÁL
lega átt við efnahagslegar ráðstafanir til þess að tryggja full-
komið lýðræði á öllum stigum skólakerfisins:
— ókeypis menntun
— viðunandi skólahúsnæði
— fjárhagsaðstoð við nemendur
— umbætur í húsnæðismálum.
Til þess að auðvelda börnum skólagönguna mælir þingið
með eftirfarandi: Þeirri stefnu verði fylgt að lengja for-
skólamenntun, fækka börnum í öllum bekkjardeildum,
koma á fót sérstökum deildum fyrir börn, sem dregizt hafa
aftur úr í einhverjum greinum, skapa betri skilyrði fyrir
hjálparbekki afbrigðilegra barna, bæta aðstöðu til félagslífs
nemenda að lokinni skólagöngu, bæta kennsluaðferðirnar
og þjálfa nægilegan fjölda vel menntaðra kennara.
Til þess að auðvelda börnum aðgang að framhaldsnámi
vill þingið, að öllum ltörnum verði skapað eðlilegt aðlög-
unartímabil og samræmi verði aukið milli menntunarþrep-
anna, sem taka við hvert af öðru.
Þingið mótmælir hverju því kerfi, sem byggir á þröngu
nytsemdarsjónarmiði við starfsþjálfun unglinga, og ítrekar
þá afstöðu sína. Með þá staðreynd í huga, að almennings-
álitið í öllum löndum sýnir sívaxandi áhuga á menntunar-
vandamálum, heitir þingið á alla þá, sem starfa að fræðslu-
málum innan vébanda Alþjóðasambands barnakennara og
hafa það markmið að vernda framtíð æskufólks, að gerast
nú talsmenn þessara óeigingjörnu sjónarmiða. Þingið heitir
ennfremur á öll aðildarfélögin að koma á nánu samstarfi
milli foreldra og annarra, sem hafa þessar sömu skoðanir,
og freista þess að skapa það andrúmsloft, sem stuðlað geti
að sönnu menntunarlýðræði.
IFTA þingið sóttu nú 210 fulltrúar frá 23 löndum, þeirra
á meðal Skúli Þorsteinsson, formaður S.Í.B., sem var eini
þátttakandinn frá íslandi. Samtökin voru stofnuð árið 1926,
og eru nú í þeim kennarasambönd — eitt eða fleiri — frá