Menntamál - 01.08.1966, Qupperneq 68
154
MENNTAMÁL
£) að breytingar, er verða gerðar á reglum um nám og
réttindi kennara (sbr. a-lið), verði ekki látnar ná til
þeirra kennara, sem eru í föstum stöðum, þegar breyt-
ingarnar taka gildi.
Félagsmál.
1. Þingið er sammála um, að eigi sé tímabært að breyta
ákvæðum laga L.S.F.K. um rétt kennara til aðildar að
Landssambandinu, meðan ákvæði um menntun þeirra
og réttindi eru jafn óskýr og nú er.
2. Þingið samþykkir, að stofnuð verði svæðasambönd eða
kjörsvæði innan L.S.F.K. Á hverju kjörsvæði verði
stofnað samband kennarafélaga eða kennarafélag, er
nái yfir allt svæðið. Tilgangurinn skal vera sá að skapa
nánari félagstengsl milli kennara innan hvers svæðis,
og að stjórn kjörsvæðis eða svæðasambands sjái um
kosningu fulltrua til fulltrúaþings L.S.F.K. Stjórn L.S.
F.K., eða starfsmaður hennar, skal sjá um stofnun
nefndra svæðasambanda í samræmi við félög og ein-
staklinga í viðkomandi landshlutum.
3. 10. grein laga L.S.F.K. verði svohljóðandi:
Á fulltrúaþingi eiga sæti kjörnir fulltrúar á kjörsvæð-
um, sem miðast við kjördæmi landsins, einn fyrir
hverja 10 félagsmenn eða brot þeirrar tölu. Einnig
fulltrúar sérskóla, er kosnir séu eftir sömu reglu.
Sams konar sérskólar myndi með sér samband um kjör
fulltrúa. Stjórn sambands eða félags á hverju kjörsvæði
lætur fram fara á fundi leynilega kosningu fulltrúa til
fulltrúaþinga L.S.F.K. Þó skal stjórnum strjálbýlla kjör-
svæða heimilt, séu sérstakar ástæður fyrir hendi, að
ákveða bréflega kosningu innan síns kjörsvæðis, enda
komi til samþykki stjórnar L.S.F.K.
Síðari hluti 10. greinar, sem hefst á orðunum: „Allir
félagar hafa rétt til —" o. s. frv., verði óbreyttur.
4. Þingið leggur til, að stjórn L.S.F.K. vinni að því, að