Menntamál - 01.08.1966, Blaðsíða 34
120
MENNTAMAL
að standast fyrrihlutapróf tæknifræði, sem er jafngilt fyrri-
hlutaprófi danskra tækniskóla.
Til þessarar kennslu eru nú ætlaðir 27 mánuðir. Þar af
fara 20 mánuðir til kennslu á námsefni danskrar undir-
búningsdeildar (Adgangskursus) og fyrri hluta tæknifræði.
Eftir eru 7 mánuðir til þess að bæta upp mun í raun-
greinum við íslenzkt og danskt gagnfræðapróf.
Ef kennt er með svipuðum hraða og í dönskum gagn-
fræðaskólum, þyrftu nemendur að fá 18 vikustundir í stærð-
fræði og 10 vikustundir í eðlis- og efnafræði til þess að
vinna þennan mun upp á 7 mánuðum.
Vafasamt er að nemendur fái torgað svo stórum skammti
af tormeltu námsefni á skömmum tíma.
Hagkvæmara yrði að dreifa þessum mun á öll 3 árin,
þótt það kynni að leiða til strangara náms á tveimur seinni
árunum.
Stöðu tækniskólans í íslenzku skólakerfi í dag mætti líkja
við stöðu verkfræðideildar háskólans, ef engin stærðfræði-
deild væri við menntaskólana og hún fengi aðeins stúdenta
úr máladeild til verkfræðináms.
Framtíðarlausn þessara mála fengist með raungreinadeild
gagnfræðanáms, en meðan hún er engin verður tækniskól-
inn að styrkja undirstöðumenntun nemenda sinna með
mjög ströngum forskóla.
Reykjavík, 2. janúar 1966.
Sveinbjörn Björnsson.
SKRÁ YFIR HEIMILDARRIT
(1) Sigurður Pétursson: Nám í náttúrufræðum á íslandi. Mennta-
mál XXXI, 1, bls. 55-77, (1958).
(2) Ásgeir Þorsteinsson: Tæknimenntun. Menntamál XXXV, 1, bls.
38-44, (1962).
(3) Undervisningsvejledning for folkeskolen, Betænkning Nr. 253,
(1964).
(4) C. C. Andersen, S. A. Bo, Gunnar Nielsen og J. Damgaard Sören-
sen: Realskolens regning og matematik. Regning og aritmetik,