Menntamál - 01.08.1966, Qupperneq 98
184
MENNTAMÁL
verður sextugur. Lengd hverrar kennslustundar skal
vera 40 mínútur.
2. Kennsluskylda söngkennara verði yb af kennsluskyldu
almennra kennara.
3. Kennsluskylda barnakennara við vanvitaskóla, málleys-
ingjaskóla og aðra hliðstæða sérskóla svo og þeirra kenn-
ara, sem kenna svonefndum hjálparbekkjum eða bekkj-
um, sem skipaðir eru börnum, er einhverra orsaka vegna
hafa dregizt aftur úr í námi, skal vera 4/ af kennslu-
skyldu almennra kennara.
4. Daglegur starfstími í barnaskólum skal vera frá kl. 9.00
—12.00 og 13.00—17.00 alla daga vikunnar nerna laugar-
daga frá kl. 9.00—12.00.
Hefji skóli starf fyrir kl. 9.00, skal honum ljúka þeim
mun fyrr. Á laugardögum skal skóli, sem hefur starf
kl. 8.00, ljúka störfum kl. 11,00.
Heimilt er að fella niður kennslu á laugardögum með
samkomulagi hlutaðeigandi skólanefndar, skólastjóra og
kennara, enda lengist skólatíminn aðra daga vikunnar,
svo að full kennsluvika náist á 5 dögum.
5. Kennslustundir barnakennara skulu vera samfelldar með
10 mín. stundahléi á milli kennslustunda. Verði eyða
í daglegum, samfelldum starfstíma þeirra, skal reikna
þann biðtíma sem kennslutíma. Stundahlé telst til
vinnutíma, enda annist kennari vörzlu með nemendum
eftir nánari ákvörðun skólastjóra og kennarafundar.
6. Kennari, sem vinnur önnur störf en kennslu í þágu
skólans og að ósk skólastjóra, á rétt á, að kennslustund-
um hans sé fækkað, sem þessari vinnu nemur, eða að slík
vinna verði greidd sem yfirvinna. Þau störf, sem hér er
átt við, eru: Undirbúningur skólaskemmtana og önnur
félagsstörf með nemendum, ferðalög með þeim, umsjón
með bókasöfnum, kvikmyndasýningar, umsjón með
kennsluáhöldum, eftirlit með kennslu í ákveðinni náms-
grein og samning verkefna, fjölritun o. fl.