Menntamál - 01.08.1966, Blaðsíða 89
MENNTAMÁL
175
mannfundum. Hann var glöggskyggn á menn og málefni.
Hann sá dýpra en flestir aðrir.
Þjóðkunnur var Stefán þó fyrst og fremst fyrir ritstörf
sín. Hann var í fremstu röð íslenzkra rithöfunda. Bækur
hans, sem einkum eru ætlaðar börnurn og unglingum, eru
löngu viðurkenndar. Sagan um Hjalta litla myndi ein nægja
til þess, að skipa höfundi sínum á bekk meðal fremstu
barnabókahöfunda samtíðarinnar. Hjalti litli hefur verið
gefinn út í Noregi og Rússlandi. Nokkrar smásögur eftir
Stefán hafa einnig verið þýddar á önnur tungumál. Barna-
bækur Stefáns bera í ríkum mæli þau einkenni sígildra
barnabóka að vera einnig kærkomið og hollt lesefni fyrir
fullorðna. Mestu ritverk Stefáns skrifuð fyrir fullorðna,
Vegurinn að brúnni og Bréf frá Sandströnd, fengu að vísu
góða dóma, en ég hygg, að framtíðin eigi eftir að veita
þeim enn meiri viðurkenningu.
Stefán var starfsmaður svo mikill að undrum sætti þrátt
fyrir það, að hann gekk ekki heill til skógar um margra
ára skeið. Hann sendi frá sér 34 bækur. Þar af 30 frum-
samdar. Auk þess liggja eftir hann handrit, og kennara-
starfið rækti hann með ágætum. Starfsdagurinn hefur því
oft verið langur, en vinnugleðin var hans dýrmæti aflgjafi.
Hann undi sér bezt meðal barna og við skrifborðið á
heimili sínu.
Stefán átti í ríkum mæli þá eiginleika, sem gera mann-
lífið fegurra og betra. Minning um kæran vin vermir og
varpar geislum á veginn.
Með Stefáni Jónssyni er fallinn í valinn einn snjallasti
rithöfundur þjóðarinnar, virtur kennari og farsæll fulltrúi
kennarastéttarinnar.
Eg votta konu hans, Önnu Aradóttur, skyldmennum og
vinum, dýpstu samúð.
Skúli Þorsteinsson.