Menntamál - 01.08.1966, Blaðsíða 72
158
MENNTAMÁL
eyða í daglegum starfstíma skal reikna þann biðtíma
sem kennslutíma og greiða að iullu.
8. Kennari, sem vinnur önnur störf í þágu skólans en
kennslu að ósk skólastjóra, skal fá kennslustundum
fækkað sem þeirri vinnu nemur eða slíka vinnu greidda
sem yfirvinnu samkvæmt ákvæðum kjaradóms um yfir-
vinnu opinberra starfsmanna.
9. Verði árlegur starfstími skóla lengri en 8 mánuðir skal
vikuleg kennsluskylda kennara lækka í hlutfalli við þá
lengingu og árleg kennsluskylda þannig haldast óbreytt.
10. Öll vinna, sem fer fram yfir 10 yfirvinnustundir á viku,
skal greidd sem næturvinna.
11. Matartími skal vera klukkustund á bilinu 11,50—13,10
og skal yfirvinnugreiðsla koma fyrir, ef út af því er
brugðið. Heimilt er að stytta eða lengja matartímann
með samkomulagi skólastjóra og kennara að fenginni
samþykkt L.S.F.K.
12. Hver hluti kennslustundar, sem gengur yfir á eftir-
vinnutíma, greiðist sem hálf stund, en hálf stund eða
meir kennd á eftirvinnutíma greiðist sem heil stund.
Formaður lil næstu tveggja ára var kjörinn Ólafur S.
Ólafsson. Aðrir i stjórn voru kosnir: Bryndis Steinþórsdótt-
ir, Snorri Jónssoti, Magnús Jónsson, Þorsteinn Eiriksson,
Jakobína Guðmundsdóttir, Guðmundur Árnason, Marteinn
Sivertsen og Óli V. Einarsson.
Fréttabréf með nánari fréttum af þinginu verður sent til
félaganna.