Menntamál - 01.08.1966, Blaðsíða 102
188
MENNTAMÁL
I. 19. fl. Kennarar með almennu kennaraprófi eða kenn-
araprófi í sérgrein.
20. fl. Kennarar með almennu kennaraprófi og fmm-
haldsmenntun (t. d. einn vetur í kennaraháskóia eða
námskeið, sem fræðslumálastjórn stofnar til í samráði
við S.Í.B.).
Kennarar með almennu kennaraprófi (án sérmenntun-
ar), sem kenna afbrigðilegum börnum og um getur í
c-, d- og e-liðum 5. gr. laga nr. 34/1946 um fræðslu
barna.
21. fl. Kennarar (sérmenntaðir), sem kenna afbrigði-
legum börnum (blindrakennarar, heyrnleysingjakenn-
arar, talkennarar og vanvitaskólakennarar).
II. Skólastjóra skal telja með í tölu starfandi kennara.
III. Starfsheitið skólastjórar barnaskóla (færri en 2 kenn-
arar), sem í drögum Kjararáðs er sett í 20 launafl., fær-
ist í 21. fl.“
Eins og öllum er kunnugt náðist ekki samkomulag milli
Kjararáðs og samninganefndar ríkisins. Eru engin tök á því
hér að rekja þær samningaviðræður og tillögur, sem fram
komu á samningsstiginu. Málinu var öllu vísað til Kjara-
dóms og þingfest þar 5. okt. 1965. Launastigi sá, sem Kjara-
ráð lagði fyrir dóminn, fól í sér mikla hækkun á föstu
laununum. í 15. launafl. voru byrjunarlaunin kr. 11.410,
eftir 15 ár kr. 14.220, í 18. launafl. voru byrjunlaun kr.
13.020, eftir 15 ár kr. 16.230, í 20. fl. voru byrjunarlaun
kr. 14.860, hámarkslaun kr. 17.720.
Kröfur fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs um föst laun
voru miklu lægri og fólu í sér um 5% hækkun launastig-
ans. í 15. launaflokki voru byrjunarlaun kr. 9.550, eftir 15
ár kr. 11.610.
Um röðun barnakennara í launaflokka gerði Kjararáð
sömu kröfu og fram kom í frumdrögum þess og getið er