Heima er bezt - 01.07.1994, Blaðsíða 7
1978 og sat þar þegar hrepparnir
voru sameinaðir. Reyndar var ég
ekki í sveitarstjórn fyrstu tvö árin
eftir sameininguna en hef verið það
allar götur síðan. Fyrir sveitarstjórn-
arkosningarnar í vor voru tveir listar
boðnir fram. Hreppsnefninda skipa
nú fjórir framsóknarmenn og þrír
sjálfstæðismenn. Eftir kosningar
vinna menn allir saman sem ein
heild.“
- Er gott að búa í Mýrdal?
„Það vorar snemma hérna og klaki
fer fyrr úr jörð en annars staðar.
Þetta er syðsti punkturinn á landinu
Vík í Mýrdal.
og líklega hefur það sitt að segja.
Hér er jafnframt mjög rigningasamt
og líklega er enn votviðrasamara hér
í Mýrdalnum heldur en undir Eyja-
fjöllunum. Hér er aftur á móti tiltölu-
lega snjólétt, einkum vestan til.“
Vaxtarbroddur í
ferðaþjónustu
- Þú hefur í mörg horn að líta sem
verslunarstjóri Víkurskála, að
l önnum dagsins við skrifborðið.
minnsta kosti yfir sumarið. Þú varst
önnum kafinn við að fara yfir reikn-
inga þegar blaðamaður knúði dyra
hjá þér á þröngri skrifstofunni klukk-
an hálfníu að kvöldi.
„Vinnudagurinn er langur, og ég
held að þeir sem séu í rekstri af
þessu tagi megi alltaf búast við því.
12-14 tíma vinnudagur er ekki langt
frá lagi.
Auk starfs míns sem verslunar-
stjóri í Víkurskála hef ég haft um-
sjón með byggingu nýja hótelsins
hér í Vík. Eigandi Víkurskála er Ol-
íufélagið hf. en Kaupfélag Arnesinga
rekur starfsemina. Það er svo aftur
hlutafélagið Móklettur sem á hótelið.
Það var byggt fyrir eigið fé og því
skuldar það ekkert, sem er mikill
munur. Helstu hluthafar eru Olíufé-
lagið, Kaupfélagið, Vátryggingafé-
lagið, hreppurinn, Iðnlánasjóður
Suðurlands, Búnaðarfélögin í Mýr-
dal og síðan milli 20 og 30 einstakl-
ingar. Lagðar voru fram 33,8 millj-
ónir í hlutafé, sem er nánast sú upp-
hæð sem húsið var byggt fyrir. Af
þeim sökum munum við geta skilað
eigendum arði þegar eftir fyrsta árið,
sem mér finnst grundvallaratriði. Það
hefur verið mikil uppbygging hér í
ferðaþjónustu á undanförnum árum.
Hótelbyggingin er þáttur í henni og
styrkir hana, það er ekki nokkur vafi.
Við byggðunr við skálann í fyrra sem
gerir okkur kleift að taka við stærri
og fleiri hópum í mat.
Það má segja að uppbyggingin sé
Heima er best 223