Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1994, Síða 10

Heima er bezt - 01.07.1994, Síða 10
Nýja hótelið í Vík, kirkjan í haksýn. - Athyglisvert er að síðustu sumur virðist sem Mýrdœl- ingar ha.fi verið að sœkja í sig veðrið í því skyni að vekja athygli á svœðinu og laða til sínferða- fólk og nii upp á síð- kastið hefur verið lagt kapp á að húa svo um hnútana að ferðamenn nemi staðar og láti fara vel um sig. „Við reynum að fá ferðafólk lil að staldra hérna við og í þeim tilgangi höf- um við nú reist þetta hótel. Einnig höfum við í auknum mæli boðið fólki upp á af- þreyingu. Hjólabát- arnir hafa mikið að- dráttarafl, við erum með hestaleigu hér, bjóðum upp á veiði og bendum gestum á skemmtilegar göngu- leiðir allt í kring. Það er auðvitað mikilvægt að fá fólk til að nema staðar á stöðum sem þessum. Þjón- ustan á svæðinu hefur farið batnandi og með tilkomu hótelsins hefur hún batnað enn. Nú getum við tekið á móti stórum hópum bæði í mat og gistingu, sem við gátum ekki áður. Hér var aðeins um að ræða gamalt hótel sem byggt var í kringum 1920 eða svo. Það var fyrir löngu orðið úr sér gengið og ónothæft. Nýja hótelið kemur í staðinn og nýi matsalurinn í Víkurskála. Þetta breytir verulega miklu og eykur umsvifin í plássinu. Við gerum okkur jafnframt vonir um að geta jafnvel boðið upp á aðstöðu til ráðstefnuhalds á öðrum tímum en yfir hásumarið. Ymsir einstaklingar hafa líka lagt út í umtalsverða upp- byggingu og bjóða nú upp á mynd- arlega gisti- og veitingaaðstöðu. I því sambandi tná benda á verulega uppbyggingu hjá ferðaþjónustu bænda hér í hreppnum og fleiri aðilar hafa verið að byggja upp gistiaðstöðu hér um slóðir. Við stefnum að því að byggja sund- laug á næsta ári. Við búum ekki við hlunnindi á borð við heitt vatn úr jörðu en við trúum því að það sé hér einhvers staðar og munum leita þess.“ - Hvað með félagslíf í Mýrdals- hreppi? „Það er með ágætuin, tel ég vera. Hér eru t.d. þrjú kvenfélög, tveir kirkjukórar, tvö ungmennafélög, hestamannafélag, skógræktarfélag, björgunarsveit og Lionsklúbbur, svo nokkur dæmi séu nefnd, og starfa allir þessir hópar af miklum krafti. Fólk getur fundið ýmislegt við sitt hæfi í félagslífinu ef það leitar eftir því.“ - Aðspurður um hvort henda megi á einhver séreinkenni á Mýrdœling- um kveður Guðmundur slíkt varla verafyrir hendi. „Eg held að þeir séu bara ósköp venjulegir Islendingar án sérein- kenna. Þó má segja að ef til vill ein- kenni þá nokkur hógværð og hlé- drægni. Einhvern tíma var því þó lýst svo að á meðan fólk í öðrum landshlutum segði strax já, segði Mýrdælingurinn gjarnan kannski. Hér býr gott fólk.“ Undir högg að sœkja Greinilegt er að Mýrdælingar láta ekki sitja við orðin tóm enda margt verið að gerast þar að undanförnu. Guðmundur segir að mannlíf sé með ágætum. Undanfarin misseri hafi verið viðvarandi atvinnuleysi í nokkrum mæli en því sé aftur á móti ekki fyrir að fara í sumar að neinu ráði. 226 Heima er hest

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.