Heima er bezt - 01.07.1994, Blaðsíða 11
í þorpinu búa um
350 manns að sögn
oddvitans en innan
við 600 í hreppnum
öllum. „Fólki hefur
farið heldur fækkandi
en íbúatalan hefur þó
nokkurn veginn stað-
ið í stað síðustu miss-
erin,“ segir Guð-
mundur. „1 hreppnum
eru góðir grunnskólar
en unga fólkið þarf
að fara að heiman til
að sækja framhalds-
skóla. Margir fara
ýmist í Fjölbrauta-
skóla Suðurlands á
Selfossi eða Mennta-
skólann á Laugar-
valni. Sumir fara til
Reykjavíkur. Þetta
unga fólk tlest hverf-
ur síðan héðan, því
miður, vegna þess að
við getum ekki boðið því vinnu að
námi loknu. Það er aðeins lítið hlut-
fall sem skilar sér aftur, alltof lítið.
Hér er mjög gott að ala upp börn -
upp að því marki þegar þau þurfa að
fara að heiman vegna skólagöngu.
Það kemur alltaf að því að foreldrar
þurfi að sjá á eftir þeim, slíkt er
alltaf erfitt.
Því miður virðist vera erfitt að
setja á slofn iðnað og önnur fyrirtæki
á stað eins og þessum. Markaðurinn
er allur á suðvesturhorninu og
samkeppnin hörð við innflutning-
inn. Hér er hafnleysi og því hefur
engin teljandi útgerð verið rekin síð-
an fyrr á öldinni.
Eg minnist þess þegar tveir sexær-
ingar voru gerðir út héðan þegar ég
var á barnsaldri. Reyndar var ekki
róið nema einstöku sinnum yftr sum-
arið. Annar hét Vonin og hinn hét
Lukkusæll. Lagt var upp frá ósum
Jökulsár á Sólheimasandi, frá
svokölluðu Maríuhliði. Útræði var
meira fyrr á tímum og var fiskurinn
umtalsverð búbót meðal bænda.
Fugla- og eggjataka var einnig
stunduð hér í miklum mæli en hefur
Efri mynd: Kort af Mýrdalnum. Neðri mynd: Reynisdrangar. Samkvœmt
þjóðsögunni urðit þeir til með þeim hœtti að tvö tröll œtluðu að draga þrísiglt
skip að landi en döguðu uppi og urðu að steinum.
nú að mestu lagst af. Fýllinn var
mjög vinsæll. Hann sést nú sjaldan á
borðum en mér finnst hann mjög
góður. Fýll er mjög sérstakur á
bragðið og af honum er sérkennileg
lykt. Mér finnst hann miklu betri ef
hann er kafsaltaður og hefur legið í
salti í nokkurn tíma.
Vík er fyrst og fremst þjónustubær.
I fyrsta lagi má nefna þjónustu við
fbúa staðarins og í sveitinni, sem er
stærsti þátturinn, síðan ferðaþjónustu
og loks eru hér rekin ýmis fyrirtæki
og gengur rekstur margra þeirra
mjög vel.
Ég held að fólk hafi það tiltölulega
gott og hér sé mannlíf að mörgu leyti
með ágætum.“ ÍTTám
Heima er hest 227