Heima er bezt - 01.07.1994, Síða 22
eins og var daginn áður, logn og sól-
skin. Fyrst fór ég suður yfir Breið-
dalsá, síðan gönguslóðir frani hjá
Osi, en áður en ég kom að Kleifum,
sem er örnefni við sjóinn, mætti mér
hin fræga austfjarðarþoka, sem ég
hafði ekki kynnst áður í þeirri mynd
sem hún birtist mér nú, dimm svo að
lítið sá ég frá mér. Þó grillti í sól
öðru hvoru í gegnum þokuna og
bárugjálfur varð ég var við úr fjör-
unni þegar ég fór fram hjá Streitis-
hvarfi.
Ég paufaðist áfram æðilengi í
þokunni eftir götuslóða, en þar kom
að bær var fram undan. Hann sá ég
vegna þess að gatan lá sem næst um
hlaðið á bænum. Þetta voru Karls-
staðir. Þarna gerði ég vart við mig og
var mér vel tekið. Mér var boðið inn
og þáði ég góðar veitingar, en þá var
að athuga hvort ég fengi mig ferjað-
an yfir fjörðinn, það er Berufjörð,
yfir til Djúpavogs. Það reyndist auð-
velt og voru strax kvaddir til tveir
röskir drengir sem ég fór með niður
að sjó. Þar var ýtt úr vör lítilli trillu
og haldið út í þokuna, sem mér virt-
ist nú mjög dimm. Það sást varla út
fyrir borðstokkinn og lítið vissi ég
hvert við vorum að fara. Ferðin gekk
samt ágætlega og áður en varði
renndi trillan upp að bryggjunni á
Djúpavogi.
Ég borgaði þessum ratvísu drengj-
um bátsferðina sem er mér enn í
fersku minni. Ég hoppaði í land og
skundaði upp bryggjuna. Við fyrsta
húsið nam ég staðar. A því stóð
„Kaupfélag Berufjarðar.“ í því sem
ég stend þarna kemur maður út úr
húsinu sem ég þekkti ekki. Hann
heilsaði mér vingjarnlega og sagði:
„Þú þekkir mig nú ekki sem ekki
er von,“ og bætti svo við: „Þú ókst
áætlunarbíl á milli Akureyrar og
Austfjarða og í bílnum voru yfir tutt-
ugu manns og ég var einn þeirra. Ég
man vel eftir þér sem rútubílstjóra,
en komdu nú inn og segðu mér frá
ferðalagi þínu.“
Þessi maður var kaupfélagsstjórinn
á staðnum, Jón Gunnarsson. Hann
leiddi mig inn og bauð mér í stofu
þar sem ég þáði góðar veitingar og
svo sagði ég honum frá ferðalagi
mínu. Fyrirhugað væri að komast
hringinn, fara hringferð um landið,
frá Reykjavík norður og austur um
land og síðan suður og vestur um
sýslur til Reykjavíkur. Lauk ég frá-
sögn minni með því að segja að mig
/ Hamarsfirði.
langaði að komast í Álftafjörðinn í
kvöld.
í fyrstu virtist mér Jón dálítið hissa
að heyra ferðaáætlun mína. Hann
Einar í H valnesi á Lónsheiði.
238 Heima er hesl