Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1994, Síða 25

Heima er bezt - 01.07.1994, Síða 25
Ain Kolgríma í Suðursveit. Undir brúna má sjá í bœinn Skálafelí. A Vagnsstöðum í Suðursveit. einstaklega þægir og góðir og auð- vitað þaulvanir vatnahestar. Eftir um klukkustundarferð í Jök- ulsá í Lóni komumst við loks yfir á vesturbakkann og varð ferðafólkið mjög fegið. Nú var ég reynslunni ríkari eftir að hafa komist í kynni við jökulá í foráttuvexti. Við kvöddum þennan ágæta leið- sögumann sem fylgdi okkur í hlað á Volaseli. Þar beið okkar fólksbíll svo ekki var beðið boðanna heldur stigið strax inn í hann og haldið af stað til Hornafjarðar. Við komum á Höfn eftir miðnætti, en þar þekkti ég eng- an og því spurði ég bílstjórann hvar helst væri fyrir mig að fá gistingu. Hann sagði að það væri ekki auðveit þegar svona væri orðið framorðið en sagði: „Eg get bætt úr því fyrir þig, þú getur fengið að sofa heima hjá mér.“ Varð ég því náttúrlega mjög feginn og þarna átti ég góða nótt. Þessi ágæti bílstjóri hét Eiríkur Júlíusson. Hann gerði mér meiri greiða en þetta með gistinguna. Já, virkilega mikinn greiða. Þannig var að ég sagði honum frá ferðalagi mínu og að fyrirhugað væri að reyna að kom- ast hringinn, það er hringinn um- hverfis landið, landveginn. Þegar hann hafði heyrt frásögn mína get ég látið mér detta í hug að hann hafi hugsað eitthvað á það leið að þessi angurgapi þekkti ekki vatnsföllin hérna, en sagði við mig í viðvörunar- tón: „Arnar hérna í Hornafirði eru margar og sumar mjög vatnsmiklar og ekki síst núna eftir þessa miklu hita undanfarna daga, því þær koma frá Vatnajökli eins og Hornatjarðar- fljót, Heinabergsvötn og margar fleiri og eru allar í bullandi vexti.“ Vafalaust hefur það verið hárrétt athugað hjá Eiríki að ég gerði mér ekki ljóst hvemig ég kæmist þessa leið því hún er vissulega erfið og seinfarin. Síðan sagði hann: „Þessa leið ferðu ekki núna. En það er til önnur leið sem er oft farin og skal ég athuga fyrir þig hvort þú getur ekki komist hana.“ Hófst hann strax handa um að at- huga það fyrir mig. Fyrst hitti hann kunningja sinn sem átti trillu og sá kvað sjálfsagt að skjóta manni fyrir hann yfir á Melatanga strax eftir há- degið, en ekki var það nóg, meira þurfti til. En það var eins og Eiríkur hefði ráð undir rifi hverju. Hann lét ekki þar við sitja heldur hringdi í bíl- stjóra, sem hann þekkti vel og átti heima í Suðursveit, og bað hann að sækja fyrir sig mann austur á Mela- tanga sem yrði þar upp úr hádeginu þennan dag. Þetta gekk eins og um Heima er best 241

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.