Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1994, Síða 51

Heima er bezt - 01.07.1994, Síða 51
„Fólk hendir gaman að mér.“ „Það fær engu ráðið um það.“ Kölski ákvað nú að hughreysta soninn: „Ég skal segja þér eitt. Á meðan þú ert þarna úti þá máttu dreifa svolítilli illgirni.“ „Húrra!“ Kvikindi skakklappaðist upp og niður og vatt sér í hring. „Og ágirnd líka?“ „Þá það, ágirnd líka,“ svaraði Kölski og reyndi að sýna svolitla undanlátssemi. „Þú ert svo ömurlegur drengur, Kvikindi. Ég fyrirlít þig afar nrikið.“ „Ég hata þig líka, pabba-skratti,“ sagði Kvikindi og endurgalt hrósið. Síðan læddist hann á brott. „Bölvun fylgi þér, sonur.“ Árinn gretti sig af stolti um leið og hann gjóaði auganu upp eftir nefinu á föður sinn: „Og bölvun fylgi þér líka, þú gamli óvættur.“ Kölski kallaði nú á þann sem gætti eldsins og brenni- steinsins til þess að fá skýrslu. Fréttirnar voru ekki bein- línis brennandi. I skála 76, sem hýsti hina geðvondu og illa innrættu, voru sálir að segja brandara. Fjöldi upp- reisnarmanna í nr. 142 hundsaði reglurnar með því að hugleiða. Til að gera málin enn flóknari voru allir sjálfs- píslararnir að skipuleggja mótmælagöngu til þess að krefjast verri aðstæðna. Kölski stundi við og sagði: „Vita þeir ekki að ég styð stefnu þeirra algjörlega? Það er sem ég segi, þessi staður stefnir hraðbyri til himnarík- is.“ Kölski sat í fýlu á einkaskrifstofu sinni í marga daga. Hann neitaði að hilta nokkurn. Hann gat fundið hvernig hitastigið lækkaði. Það var hryllilegt að heyra ekki nein skerandi öskur eða hrín af skerandi angist bergmála frá hellum maklegra málagjalda. Á þriðja kvöldi birtist hár og myndarlegur maður í dyr- unum og sagði: „Halló, pabbi.“ Gapandi af undrun starði Kölski á hann. „Kvikindi? O, mitt heitasta víti, hvað er að sjá þig? Hræðilegt útlit þitt hefur verið gjörsamlega eyðilagt.“ „Ég lenti á meðal heittrúaðra heilara.“ Það snörlaði í Kölska. „Af Irverju geta þeir ekki bara látið þessa nógu slæmu eiga sig?“ „Pabbi, ég kom lil þess að segja...“ „Hættu að kalla mig þetta. Hefurðu glatað allri óvirð- ingu?“ „...ég get ekki lifað undir þinni torfu lengur. Ég hef komist að því hvernig þú flækir allt. Að freista Evu var virkilega rotið.“ „Það þér fyrir, en þá smán verður nú frændi minn að fá, hann Fágæti. Mér er illa við garða. Það er svo mikið af frjókornum í þeim.“ „Þú vilt nú bara láta hciminn halda það.“ „Nei, það er satt,“ sagði Kölski, „ég þjáist af hey- mæði.“ „Ég er að tala um Evu.“ „Hún varekki með heymæði, Kvikindi.“ „Ég heiti Kristinn núna. Vertu bless.“ Undirsáti kom nú inn og sagði: „Hérna er bókrolla í hraðsendingu til þín, húsbóndi.“ „Það var nú tími til kominn,“ hneggjaði Kölski af ánægju og taldi að þar væri kominn hinn mánaðarlegi listi yfir þá senr buðust til þess að selja sálu sína. Hann fletti utan af keflinu. Hornin á honunr sigu þegar hann las: Við, hinir himnesku húshœndur, í þessum samningi nefndir afsalshafar, lýsum hér með yfir að Kölski, í þessum samningi nefndur afsalsgjafi, skal rýma og afsala sér þessum híhýlum og tengdum svæðum, hingað til þekktum annaðhvort í hugsun, reynd eða hvoru tveggja sem Víti, liér eftir kallað Hel. Nefnd rýming og afsal skal framkvæmt í flýti en af reglusemi og í anda samvinnu. Það skal vera í verka- hring afsalshafa að útvega húsnæði við hæfifyrir qf- salsgjafa og hefur verið undirbúið að afsalsgjafi geti fliitt til hotnlauss dýpis, í þessum samningi nefnt Vít- ishola, til dvalar þar í ekki skemmri tíma en 1000 (eitt þásund) ár eða tímahil sem ekki sé lengra en ei- lífð (að eilífu). Afsalsgjafa er ennfremur hent á að: 1. Ollum sálum í eða umhverfis hið rýmda svæði eru gefnar upp allar syndir, hvort sem þær eru raun- verulegar eða ímyndaðar. 2. Þœr eru leystar undan eilífri útskúfun, hvort sem þær hafa til hennar unnið eða dæmt sig sjálfar til hennar. 3. Afsalsgjafi skal gefa eftir allar kröfur á nefndar sáilir og ánafna þær hinum skapandi öflum til endur- hœfingar. 4. Og að... „Kallið á lögfræðinga mína,“ skipaði Kölski rárnri röddu. „Hérna, taktu þetta og brenndu það. Notaðu eld- spýtur ef með þarf.“ Heima er hest 267

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.