Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1970, Page 24

Æskan - 01.10.1970, Page 24
'mM. Mpp feffa Sg -- ■ ■ mWm I 1111 wmm Wmmmmmmm f einhver hefði tekið sig til fyrir um 2000 árum að telja hinum fornu Pers- um trú um, að þeir réðu ekki yfir allri veröldinni, hefðu þeir orðið mjög undrandi. Kínverski / Veldi þeirra náði frá Egyptalandi til Indlands, og þeir töldu, að þar með væri um lítið annað landrými að ræða, sem máli skipti. Þó hafði í þúsunda mílna fjarlægð í Kína verið að myndast þjóðfélag — borgir og þorp — á svipaðan hátt og átti sér stað í Mið-Austurlöndum. í Egyptalandi höfðu fyrstu íbúarn- ir sem sögur fóru af lifað á bökkum Nílar, og á sama hátt höfðu bændur Kína lifað á bökkum Gula-fljóts. Þar höfðu þeir nóg af vatni til ræktunar lands og til kvikfénaðar síns. Loks var landrýmið ekki nóg, og þannig dreifðust íbúarnir út á slétturnar. Jörðin var frjósöm og auðvelt að rækta þar gnægð af hveiti, rís og hirsikorni, en þeir urðu að grafa skurði til þess að veita vatninu frá fljótinu til akra sinna. Það kenndi þeim að vinna saman öllum til hags- bóta. Fljótlega fór verkaskipting að vaxa þar, sem ekki þurftu allir að erja jörðina, aðrir urðu bygginga- menn, járnsmiðir og hermenn. Þeir fóru að byggja sér borgir til þess að lifa þéttara saman. Reistar voru hallir fyrir þjóðhöfðingjann, Leirmunir og líkön, sem fundizt hafa í grafhýsum: AS ofan: Borgarhiið. — Lítið kínverskt hús. — Vatnsbrunnur. — Elda- vél. — Ferðalag konunglegra, í hestakerrum. ( 496

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.