Æskan - 01.10.1970, Blaðsíða 22
Verðlaunahafar og fararstjórar.
Getrauna-
samkeppni
/II s.l. vetri efndu barnablaðið ÆSKAN og Lands-
samband klúbbanna ÖRUGGUR AKSTUR til get-
W raunasamkeppni um umferðarmál. í vor var
dregið í samkeppni þessari, en tæplega 600
börn reyndust hafa rétt svör af um 700, sem þátt tóku I
keppninni. Svaraði þessi stóri hópur öllum 30 spurning-
unum rétt.
Fimm hamingjusamir verðlaunahafar fengu, auk ferðar
til Akureyrar, verðlaun sem hér segir:
Kolbrún Bergsdóttir, Reykjavík, 1. verðlaun: vandað reið-
hjól með öllum búnaði. Þuríður Pálsdóttir, Reykjavik, 2.
verðlaun: tvö tiu daga námskeið við Sumaríþróttaskólann
að Leirá í Borgarfirði. En þriðju til fimmtu verðlaun, sem
voru vandaður alklæðnaður (peysa, buxur, skór og kulda-
úlpa) frá fataverksmiðjum Sambands íslenzkra samvinnu-
félaga á Akureyri, hlutu: Jónína G. Guðjónsdóttir, (safirði,
Unnur Sigríður Einarsdóttir, Reykjavík, og Magnús Örn
Stefánsson, Selfossi.
Þau sem hrepptu fataverðlaunin.
494