Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1970, Blaðsíða 34

Æskan - 01.10.1970, Blaðsíða 34
Á síSastliðnu vori efndu Félag Sameinuðu þjóðanna á íslandi, Loftleiðir og barna- og unglingablaðið ÆSKAN til ritgerðasam- keppni í tilefni af 25 ára afmæli Sameinuðu þjóðanna á þessu hausti. Ritgerðarefnið var: Hvers vegna á ísland að vera í Sameinuðu þjóðunum? Alls bárust 148 ritgerðir frá öllum landshlutum, og þakkar Æskan öllum börnunum, sem sendu ritgerðir í keppnina. Fyrstu verðlaun hlaut ritgerð eftir Guðmund Garðar Guðmundsson, 14 ára, Njálsgötu 14, Reykjavík. Önnur verðlaun hlaut ritgerð Jónu Karenar, 15 ára, Tjarnarstíg 3, Seltjarnarnesi. Fyrstu og önnur verðlaun eru flugferð fram og aftur til New York og dvöl þar í borg í 3 daga í boði Loftleiða. 3. verðlaun hlaut Pétur Kristjánsson, Sveinatungu, Garðahreppi, hlaut hann bókina Á söguslóðum, eftir W. G. Coilingwood. Myndir úr íslandsför sumarið 1887. Gefandi: Bókaútgáfa Menningarsjóðs. 4. verðlaun hlaut Kristín Hallgrimsdóttir, 14 ára, Goðatúni, Garðahreppi, hlaut hún bókina Hundrað ár í Þjóðminjasafni, eftir forseta íslands, dr. Kristján Eldjárn. Gefandi: Bókaútgáfa Menn- ingarsjóðs. 5. verðlaun hlaut Jóhann Tryggvi Sigurðsson, Búlandi, Árnes- hreppi, Eyjafjarðarsýslu, bókina Fuglar. Myndabók um íslenzka fugla. Gefandi: Bókaútgáfa Menningarsjóðs. 6. verðlaun hlaut Bragi Guðmundsson, Holti, Svínadal, Austur- Húnavatnssýslu, hlaut hann verkið Ævintýri og sögur eftir H. C. Andersen í 3 bindum. Ein aukaverðlaun voru veitt Sverri Ólafssyni, Mosgerði 9, Rvík, hlaut hann verkið Ævintýri og sögur eftir H. C. Andersen. Fjögurra manna dómnefnd dæmdi ritgerðirnar, og áttu sæti í henni formaður Félags Sameinuðu þjóðanna á íslandi, dr. Gunn- ar Schram deildarstjóri, Sigurður Magnússon blaðafulltrúi Loft- leiða, Helgi Elíasson fræðslumálastjóri og Grímur Engilberts rit- stjóri. 1. VERÐLAUN Guðmundur G. Guðmundsson arla líður sá dagur, að okkur berist ekki fréttir af hörm-- ungum og erfiðleikum, sem steðja að mannkyninu. Við heyrum, að þúsundir manna hafi farizt í jarðskjálftum í Perú eða orðið heimilislausir vegna vatnaflóða í Rú- meníu, helmingur mannkyns þjáist af vannæringu, og gínandi vígvélarnar spúa eyðingu og tortímingu í öllum heimshornum. Og um þessar mundir berast þær fregnir frá Tokíó, höfuðborg Japans, að menn hafi þar veikzt af völdum mengunar og fólki sé ráðlagt að dveljast sem mest innan dyra. Reyndar þarf ekki að leita svo langt til að finna áhrif þessarar menningarplágu, því hún herjar nú orðið flestar nágrannaþjóðir okkar. Fáfræði og menntunar- skortur er mannkyninu eitur, sem leitt getur til skorts á dóm- greind, til haturs og ósjálfbjargar í lífsbaráttunni. Þau fáu atriði, sem hér hafa verið nefnd, eru öllum þjóðum hvatning til aðgerða gegn því, að líf þessa hnattar fjari út eins og i sjúkum líkama. Þess vegna voru Sameinuðu þjóðirnar stofn- aðar. í lok heimsstyrjaldarinnar síðari fyrir 25 árum voru Sameinuðu þjóðirnar stofnaðar af brýnni nauðsyn. Ófriðarbálið, sem hafði næstum lagt alla heimsbyggðina í rúst, tendraði neistann að friðarbálinu, sem vonir mannanna eru svo mjög bundnar við. En ekki geta stórþjóðirnar samið um sannan frið og hamingju frekar en læknar um heilbrigði og vellíðan sjúklinga sinna. Kanna verður orsakir sjúkdómanna og vinna bug á þeim þegar við fæðingu. Þess vegna varð starfsemi Sameinuðu þjóðanna brátt margþætt, en öll miðar hún að því að auka hamingju mannanna og efla framfarir þjóðanna. íslenzka þjóðin hefur frá stofnun Sameinuðu þjóðanna átt við fremur fáa erfiðleika að etja, sem henni sjálfri hefur ekki tekizt að sigrast á. Er þá nokkur ástæða til, að íslendingar taki þátt í samstarfi annarra þjóða til lausnar vandamála, sem eru þeim að mörgu leyti framandi? Það kostar allténd nokkra fyrirhöfn og fjármuni. Er þátttaka smáþjóðar eins og íslendinga ekki aðeins sýndarmennska? Fáni okkar blaktir við hún fyrir utan aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York, Islendingar fá að hafa fulltrúa á þingi Sameinuðu þjóðanna eins og stóru þjóðirnar. Þátttaka íslendinga er mikilvæg í tvennum skilningi: Hún er mikilvæg fyrir þjóðina sjálfa og allan heiminn. Að visu veltur framtíð Sameinuðu þjóðanna ekki á samstarfi Islendinga, en það gerir hins vegar tilvist þjóðar okkar. íslenzkt hjálparstarf hefur sýnt, svo ekki verður um villzt, að þjóðinni er ekki rótt, er hún veit aðra þjást í hinum stóra heimi. En það, sem meira máli skiptir, er, hvað yrði um íslenzku þjóðina, ef erfiðleikar, sem henni er ofvaxið að leysa, taka að herja á hana, og öll sund á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna eru henni lokuð. Þjóðin hefur þegar notið nokkurs styrks frá Sameinuðu þjóðunum og mun njóta góðs af þátttöku sinni í enn ríkara mæli í framtíðinni. Hvert er þá hlutverk smáþjóðar á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna? I stuttu máli er það allt annað en óvirk þátttaka. Smáþjóð- irnar eru aðhald á stórþjóðunum. Friðarvilji þeirra verður síður dreginn í efa en stórþjóðanna, enda ekki eins háðar sérhags- munum og ýmiss konar skuldbindingum sem þær. Völd og áhrif stórveldanna eru einkum háð hernaðarmætti þeirra. Tillögur þeirra og ákvarðanir hljóta því ævinlega að miðast við það að ein- hverju leyti. En smáþjóð eins og íslendingar getur og á að nota 506
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.