Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.10.1970, Qupperneq 8

Æskan - 01.10.1970, Qupperneq 8
Saga úr sumarleyfinu /Jfcsa og Berta voru komnar á skemmtilegan baðstað með foreldrum sínum og hlökkuðu mikið til allra skemmtilegu daganna, sem þær áttu að fá að dvelja þar, enda var tíðin ágæt. Undir eins eftir að þær komu hafði verið sól og hiti dag eftir dag, og í fjörunni var alltaf margt barna, sem voru að leika sér, og mikið um fullorðið fólk, sem lá og hvíldist [ fjörunni tímunum saman. En svo hafði komið súldarveður, það komu hvítir kambar á öldurnar og í fjörunni sást ekki nema maður og maður á stangli, vafinn inn í teppi. Það var heldur ömurlegt þarna og ekki nema fáir, sem nenntu að vera úti og horfa á öldurnar falda hvítu. Og á fjörukambinum hafði verið sett upp stormmerki til þess að gefa róðrarþátunum vísbendingu um að koma að, áður en hvessti meira. í miðju fiskiverinu stóð gamall tréskúr, en það voru aðeins þeir fróðustu, sem vissu, að þar var björgunarbáturinn geymdur, því að það var sjald- gæft, að grípa þyrfti til hans um hásumarið, meðan baðgestirnir dvöldust þarna. Þarna var friðlýstur staður, og börn baðgestanna höfðu gaman af að leika sér þar, og svo voru tveir svolitlir gluggar á skúrnum, og höfðu krakkarnir gaman af að liggja á gluggunum og sjá, hvað inni væri, en þeim gekk illa að sjá það, og skúrinn var þeim ráðgáta eftir sem áður. Veðrið fór síversnandi og nú stóð ofsaveður af hafi inn yfir ströndina og það másaði og sogaði í öldunum þegar þær köstuðu brimlöðrinu inn á ströndina. Síðdegis þann dag, sem við erum að tala um, gekk sú fregn eins og eldur í sinu um þorpið, að stórt seglskip væri strandað úti á yzta rifinu, og þá getið þið nú nærri, að það fór að fjölga í fjörunni. Allir sem vettlingi gátu valdið flýttu sér niður að sjó til þess að skoða strandaða skipið. I rökkrinu sást, að skipið hafði dregið upp neyðarflagg, en sjógangurinn var svo mikill, að ómögulegt var að koma þjörgunarbátnum út. Það var reynt að skjóta flugeldum með línu út í skipið, til þess að koma kaðli á milli lands og skips fyrir björgunarstól, en þetta varð árangurslaust, því að flugeldarnir náðu ekki út í skipið. Nóttin féll yfir, en alltaf var jafnmargt fólk í fjörunni. Enginn gat sofnað af tilhugsuninni um, að þarna væru 12—15 manns úti í skipinu í bráðri lífshættu. r---------------------------------— Lærisveinarnir Jakob Markus 1, 19: „Og er hann gekk spölkorn lengra, sá hann Jakob Zebedeusson og Jóhannes bróður hans, sem einnig voru á báti að bæta net sín.“ Jakob og Jóhannes voru fiskimenn, eins og Pétur. Þeir unnu með föður sínum, Zebedeusi, og voru stundum nefndir ,,þrumusynirnir“. Sennilega hefur Jesús kallað þá það, af því að þeir voru „þéttir á velli og þéttir í lund“, fylgdu sínu fast eftir, hvort sem það var í kærleika eða reiði. Jakob hefur sennilega verið eldri en Jóhannes, af því að hann er alltaf nefndur á undan honum. Dómgreind og þekking er styrkur hans, og hefur líf hans ein- kennzt af jafnvægi og rólyndi, þó að hann hafi fengið viðurnefnið „þrumusonur" með bróður sínum. Jakob er einn af þeim þremur, sem stóðu Jesú næstir, og voru einir með hon- um t. d., er hann baðst fyrir í Getsemane nóttina áður en hann var krossfestur. Ekkert orð hans hefur varðveitzt, en hann var fyrsti píslarvotturinn meðal post- ulanna. Sagt er frá því [ Postulasögunni, að hann hafi verið hálshöggvinn, og göm- 480
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.