Æskan - 01.10.1970, Blaðsíða 65
Skrýtlur.
Óþolinmóður maður fyrir ut-
an almenningssimaklefa:
— Heyrið þér, frú, getið þér
alls ckki fundið númer ]>að,
sem þér ætlið að hringja í?
Unga frúin: — Ó, ég er ekki
að leita að númeri. Eg er að
leita að fallegu nafni á litla
drenginn minn.
Læknisfræðiprófessorinn var
að sýna stúdentunum myndir
af alls konar krankleika.
— Þessi maður er haltur,
sagði hann og benti á eina
myndina, sökum þess að ann-
ar fóturinn er styttri en hinn.
Hann sneri sér siðan að ein-
um stúdentanna og spurði: —
Hvað mynduð þér gera í sliku
tilfelli, Halldór?
Halldór hugsaði sig lengi um
og svaraði svo:
— Eg mundi vera haltur
lika, hýst ég við.
— ,Þú varst að veiða í gær,
ekki satt?
— Jú, jú.
— Beit nokkuð á hjá þér?
— Það Iield ég nú. Það beit
cinn svo stór á, að mér var
ómögulegt að koma honum
upp fyrir borðstokkinn.
— Þú segir ekki! Og livað
gerðir þú ])á?
—- Eg gat ekkert gert, því
hann kippti mér fyrir borð
áður.
— Og þú hefur náttúrlega
rennblotnað?
— O, nei, aldeilis ekki. Ég
lenti á bakinu á fiskinum.
Jón hafði verið að Ieita að
hattinum sínum í hálftíma, og
að lokum fann hann hattinn
inni i fataskáp. — Á livaða
fáránlega stað ætli ég finni
hann næst? hrópaði hann.
— Á höfðinu á þér, svaraði
kona hans.
HEIÐA — Framkalclssaáa í myndum.
181. I>EGAR afi kemur til þess að sækja þau, hleypur Heiða á móti honum. Hún vill verða
fyrst til þess að færa honum fréttirnar, en henni er svo mikið niðri fyrir, að hún getur
aðeins hrópað: „Hún getur það, hún getur það!“ Afi skilur þó strax, hvað Heiða vildi sagt
hafa. „Þú þorir þá að reyna að ganga?“ segir hann við Klöru og hjálpar henni til þess
að rísa á fætur. Afi styður Klöru, og göngulag hennar verður öruggara með hverju nýju
skrefi. „En við megum ekki þreyta þig um of,“ segir afi og lyftir Klöru í fang sér. — 182.
ÞEGAR Pétur kemur niður í þorpið, er mikið á seiði. Pétur kemst í gegnum þvöguna að
brotunum úr hjólastólnum. „Stormurinn hlýtur að hafa feykt honum fram af,“ kveður ein-
hver upp úr. „Já, það er heppilegt, að engan er um að saka,“ segir bakarinn, „því að auð-
vitað verður málið rannsakað. Allir, sem voru uppi á fjalli, geta annars legið undir grun.“
Pétur hlustar á. Honum verður ekki um sel og flýtir sér burt.
183. PÉTUR hleypur burt. Hvað hafði bakarinn sagt? Setjum sem svo, að lögreglan kæmist
að því, að hann hefði þeytt stólnum niður hlíðina, þá yrði hann tekinn höndum og honum
stungið í fangelsi. Hárin rísa á höfði hans af skelfingu. Hann er ekki mönnum sinnandi,
þegar hann kemur heim. — 184. KLARA æfir sig daglega að ganga. Eftir nokkurn tíma getur
hún gengið um, ef hún aðeins styður sig við Heiðu. Þetta eru hamingjudagar fyrir Klöru. Á
hverjum morgni vaknar hún með þá dásamlegu tilfinningu efst í huga: Ég er heil heilsu,
ég þarfnast ekki hjólastóls, ég get gengið. Einn daginn skrifar hún ömmu sinni: „Kemur
þú ekki fljótt? Mig er farið að lengja svo eftir þér.“ En hún minnist engu orði á það, sem
gerzt hefur.
Árgangur ÆSKUNNAR árið
1970 kostar kr. 300,00. Gjald-
dagi blaðsins var 1. apríl s. 1.
Borgið blaðið sem fyrst, því
þá hjáipið þið til að gera
biaðið enn stærra og fjöl-
breyttara en nokkru sinni
áður.
Aliir kaupendur ÆSKUNN-
AR njóta hins sérstaka tæki-
færisverðs á ölium bókum
blaðsins. Verðmunur frá bók-
söluverði á hverri bók er um
30%.
537