Æskan - 01.10.1970, Blaðsíða 33
Áhugalistamenn sýna listir sínar á einu torginu í Rostock.
Á útisviði voru færSar upp fjölþættar og skemmtilegar sýningar
Margir kórar barna og unglinga komu fram á hátíðinni.
Sunnudaginn 12. júlí s.l. var hin árlega Eystrasaltsvika sett I þrettánda sinn I hafnarborginni Rostock í Austur-Þýzka-
landi. Um 25 þúsund gestir sóttu vikuna aS þessu sinni frá þeim löndum, sem liggja að Eystrasalti, svo og frá Noregi og
Islandi auk heimamanna, Austur-Þjóðverjanna sjálfra. — Að venju var vikan sett með hátíðlegri athöfn að loknum skrúð-
göngum tugþúsunda á ráðhústorginu í Rostock. Sitthvað var um að vera meðan vikan stóð yfir, bæði i Rostock og nágranna-
bæjum og sveitum, er liggja við Eystrasaltið. Upp á margt var boðið á sviði lista, tónlistar, leiklistar og myndlistar, iþrótta-
mót voru haldin og efnt til ýmiss konar ráðstefna, meðal annars verkalýðsmálaráðstefnu, kvennaráðstefnu, funda með lög-
fræðingum, þingmönnum, blaðamönnum o. s. frv. Að þessu sinni munu um 30 íslendingar hafa sótt vikuna, og á þessum
þrettán árum, sem vikan hefur verið haldin, munu nokkur hundruð íslendingar hafa heimsótt Rostock.
505