Valsblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 3
VALSBLADIÐ
38. TÖLUBLAÐ —1986
Útgefandi: Knattspymufélagið Valur. Félagsheimili, íþróttahús og leikvellir að Hlíð-
arenda viS Laufásveg. — Ritstjóm: Sigurður Lárus Hólm og Þorgrímur Þráinsson.
Umsjón með auglýsingum: Fjóla Bender og Júlíana Erlendsdóttir. — Setning og
prentun: Formprent. Umbrot og filmuvinna: Repró.
Forsíðumyndina, Valsdrengir, tók Grímur Bjamason. Frá vinstri: Ingþór Hrafnkels-
son, Halldór Arnar Hilmisson og Magnús Már Haraldsson.
Ávarp borgarstjóra
Knattspyrnufélagið Valur er einn af frumherjunum í reykvísku
og þar með íslensku íþróttalffi. Félagið hefur oft borið hróður
félagsmanna sinna og borgarinnar hátt, bæði hérlendis og
erlendis, og fyrir það er full ástæða að þakka á þessum tíma-
mótum í sögu þess.En hitt er ekki síður mikilvægt, að félagið
hefur á sínum langa ferli stuðlað að fjölbreyttri starfsemi fyrir
reykvíska æsku. Það hefur skapað þeim hluta hennar, sem
þangað hefur sótt til að verja sínum frítíma, frábær skilyrði til
þjálfunar og þroska. Að slíku búa menn allt sitt líf, hvort sem
þeir gerast atvinnumenn í íþróttum um hríð eða almennir
iðkendur allt lífið.
Félag eins og Valur, hlýtur að eiga bjarta framtíð. Það hefur
mörg verk að vinna og til þess verða gerðar miklar kröfur.
Glæst fortíð hlýtur að vera hvatning til þeirra sem um þessar
mundir standa f eldlínunni af félagsins hálfu.
Fyrir borgarinnar hönd og Reykvíkinga allra þakka ég fé-
laginuframtak þess og frumkvæði á liðnum árum og
ánægjulegt samstarf við borgaryfirvöld á hverjum tíma. Megi
félagið vaxa og dafna að afli og ágætum á næstu árum.
VALSBLAÐIÐ 3