Valsblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 9
Knattspymufélagið
Valur75 ára
Sjötíu og fimm ár er í sjálfu sér ekki
langur tími þegar um er að ræða sögu og
starf íþróttafélags,slík starfsemi er ekkert
sem ,, hrist er fram úr erminni’ ’ eins og sagt
er. íþróttafélag og öll starfsemi þess
byggist á dugnaði og áhuga margra ein-
staklinga sem hafa til að bera kjark og
áræði til að koma hugsjónum sínum í
framkvæmd, sjálfum sér og samborgur-
um sínum til gagns og gleði.
Knattspyrnufélagið Valur sem stofnað
var árið 1911 af séra Friðriki Friðrikssyni,
hinum víðfræga æskulýðsleiðtoga er eitt
elsta og um leið öflugasta íþróttafélag
þessa lands. Einn traustasti hlekkur í þeirri
keðju sem myndaði íþróttasamband
íslands.
Knattspyrnualdan sem skall yfir bæinn
um aldamótin og hreif með sér unga
drengi fór ekki fram hjá drengjunum í
unglingadeildinni í K.F.U.M.
Valur var fjórða knattspyrnufélagið sem
stofnað var hér í höfuðstaðnum, hin voru:
K.R., Fram og Víkingur.
Þótt Knattspyrnufélagið Valur hafi ekki
verið eitt af þeim félögum er stóðu að
stofnun íþróttasambands íslands 1912 þá
liðu ekki mörg ár þar til Valur gerðist
fullgildur aðili að íþróttasambandinu.
Það var skoðun séra Fnðriks Friðriks-
sonar að fyrstu árin eftir að Knattspyrnu-
félagið Valur var stofnað, ættu félags-
menn þess ekki að taka þátt í knattspyrnu-
mótum. Það sem fyrir séra Friðriki vakti
fyrst og fremst var að nota uppeldisgildi
knattspyrnunnar sem hann hafði kynnt
sér rækilega - nota hana til félagslegra
starfa, svo að andlegt og líkamlegt atgervi
héldust í hendur. Hann vildi manna og
mennta Valsmenn sem best áður en þeir
færu að keppa á mótum því það var trú
séra Friðriks að íþróttirnar mundu kenna
landsmönnum að nota frístundirnar rétt
og veita æskunni útrás sem nauðsynleg er
hverjum æskumanni. Hann vildi láta
æskuna njóta góðs félagsskapar og stuðla
Sveinn Bjömsson forseti ISI.
að drengilegri keppni á leikvelli. Veita
unglingunum einlæga þrá til þess að
verða íþróttunum að sem mestu liði því
íþróttirnar færa ungum mönnum ekki
aðeins líkamlega hreysti, heldur einnig,
sem er ekki síður mikilsvert fyrir þjóðfé-
lagið, þær skapa drengilegt og hreint
hugarfar.
Knattspyrnufélagið Valur hefur verið
það lánsamt að eiga á að skipa mörgum
slíkum einstaklingum, að öðrum kosti
væri félagið ekki það sem það er í
dag. Auðvitað hafa skipst á skin og skúrir í
sjötíu og fimm ára sögu félagsins en þegar
upp er staðið frá hverju verkefni hefur
ávallt miðað áleiðis, hið jákvæða náð
fram að ganga og hugsjónir orðið að
veruleika.
Valur varð fljótlega eitt af forystufé-
lögum bæjarins í þeirri íþrótt sem félagið
var stofnað um en síðan hefur félagið
haslað sér völl á öðrum sviðum íþróttanna
og hefur nú margar íþróttagreinar á
stefnuskrá sinni.
Allt frá því að félagið var stofnað hefur
það verið stefna þess að bæta og byggja
upp aðstöðu félagsmanna, hafa grósku-
mikið félagslegt starf samhliða þróttmiklu
íþróttalífi.
Það hefur vissulega margt breyst frá því
Knattspyrnufélagið Valur var stofnað. Hin
síðari ár hafa ekki hvað síst orðið við-
burðarík fyrir Val og einstaka íþróttamenn
þess. Margir og kærkomnir sigrar hafa
unnist og aðstaða öll á eftir að breytast
mikið til batnaðar með tilkomu hins nýja
íþróttasvæðis sem félagið er nú að byggja
upp og á það eftir að verða kjölfesta þess í
framtíðinni.
A þessum tímamótum vil ég því, um
leið og ég flyt Knattspyrnufélaginu Val
bestu afmæliskveðjur frá íþróttasambandi
Islands, þakka þeim mörgu einstaklingum
er hér eiga hlut að máli mikið og fórnfúst
starf. Framlag þess fólks sem haldið hefur
uppi merki Vals í sjötíu og fimm ár er
ómetanlegt og í raun hefur félagið og
starfsemi þess verið stór hluti af daglegu
lífi Reykvíkinga, beint og óbeint.
Ollum forystumönnum félagsins fyrr og
síðar flyt ég kærar þakkir fyrir ómetanlegt
framlag í þágu íþróttastarfsins í landinu í
heild því að úr röðum Valsmanna höfum
við átt mjög dugmikla og góða drengi sem
starfað hafa á landsgrundvelli ef svo má
segja.
Megi framtíðin verða ykkur farsæl og
heilladrjúg, vegur ykkar jafnt innan sem
utan vallar fara vaxandi með hverju ári.
Sueinn Bjömsson
forseti ÍSl
VALSBLAÐIÐ 9