Valsblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 36
Danmerkurferð 3.flokks
- Eftirfarandi grein er byggð á tölu sem
Steinar Adolfsson, leikmaður með 3. fl. sl.
sumar, hélt á uppskeruhátíð knattspyrnu-
deildar Vals í nóvember. Steinar er frá
Ólafsvík og var einn af máttarstólpum 3.
fl. Vals í sumar en margir strákar þess
flokks leika með 2. fl. næsta sumar. Miklar
væntingar eru gerðar til flokksins á næsta
ári enda mál manna að annar eins efni-
viður góðra knattspyrnumanna hafi ekki
verið í Val í langan tíma. í eftirfarandi tölu
segir Steinar í grófum dráttum frá fyrstu
reynslu sinni í Val og frá Danmerkurferð
3. flokks í júlí síðastliðnum.
Góðir gestir!
Ég hef verið beðinn að segja frá því
hvernig það er að koma í nýtt félag og
þeim viðbrigðum sem því fylgir. Astæða
þess að ég fór í Val er sú að ég er að
sækjast eftir meiri samkeppni því ef hún er
ekki til staðar er hætt við að menn staðni
og taki ekki lengur framförum. Það er
óhætt að segja að næg samkeppni hafi
verið í 3. flokki Vals sl. sumar því á
æfingum voru allt að 20 manns sem allir
vildu að sjálfsögðu vera í iiðinu. 1 Ólafsvík
aftur á móti voru ekki nema 6-7 ein-
staklingar í verulegri samkeppni og því
allir öruggir í 11 manna lið.
Reyndar vorum við tveir „sveitamenn-
Steinar Adolfsson kom frá Ólafsvik og
lék sitt fyrsta sumar með Val. Einn efni-
legasti miðjumaður landsins í sínum
aldursflokki.
irnir” sem mættum á æfingu hjá Val strax
um miðjan maí ég og Eddi félagi minn
sem allir þekkja. Það er alltaf erfitt að byrja
í nýju umhverfi með nýjum félögum og
þjálfara. Aðlögunartíma þarf til að melta
allt saman, en ef hópurinn er góður eins
og hann er hjá Val gengur allt mun betur
fyrir sig. Þegar við gengum í Val var
þegar búið að ákveða að fara í keppnis-
ferð til Danmerkur og voru strákarnir
byrjaðir að safna peningum á ýmsan hátt
til að kostnaðurinn yrði ekki eins mikill.
Mótið sem farið var á heitir Dana Cup
og var haldið í Hjörring í Danmörku.
Mótið var mjög fjölmennt og sem dæmi
um fjölda þátttökuliða voru keppnislið í 3.
flokki eingöngu, 184 talsins - þannig að
leiðin á toppinn var æði löng og ströng.
Lagt var af stað til Danmerkur laugar-
daginn 19. júlí en mótið sjálft stóð frá
21.-26. þess mánaðar. Með okkur í ferð-
inni var valinkunnur mannskapur þ.e.
Kristján þjálfari (það þótti æskilegast!!!),
Gulla kona Kristjáns, sem var jafnframt
fjármálaspekingur ferðarinnar og að lok-
um Rásar 2 maðurinn Gunnlaugur Sig-
fússon, sem var fararstjóri.
I okkar liði voru liðin Birnir, Iþróttafélag
Krákueyjabúa og að lokum knattspyrnu-
Iiðið Alþýðuvinurinn. Við sigruðum
nokkuð örugglega í riðlinum og urðum
þar af leiðandi í fyrsta sæti! Eftir riðla-
keppnina var útsláttarfyrirkomulag og því
þyngdist róðurinn jafnt og þétt það er
að segja því fleiri leiki sem við unnum. Að
lokum féllum við úr keppni í 16 liða
úrslitum - við töpuðum fyrir brasilísku liði
eftir framlengdan leik og vítaspyrnu-
3. flokkur Vals sumarið 1986. Stórkostlegur efniviður leikmanna. Á myndina vantar reyndar nokkra leikmenn.
36 VALSBLAÐIÐ