Valsblaðið - 01.05.1986, Qupperneq 53
En það eru ekki eingöngu gamlar
handboltakonur í Valskonum. í félaginu
eru eiginkonur eldri Valsmanna svo og
eiginkonur og unnustur félaga sem
stunda íþróttir með Val eða tengjast
félaginu á einhvern hátt. Við höfum
saknað þess að fá ekki til starfa með
okkur, þær konur sem æfa með félaginu
hverju sinni en þær eru ávallt velkomnar.
Valskonur voru gerðar að löglegri deild
innan Vals á aðalfundi 28. mars 1984 og
er það vel því Valskonur eru að verða
meira áberandi f starfi Vals með hverju
árinu sem líður. Formaður Valskvenna
situr fund með aðalstjórn ásamt for-
mönnum annarra deilda hjá Val.
Markmið félagsins er að efla kynningu
og samstöðu félagskvenna. Rétt til inn-
göngu hafa allar konur velunnarar Vals.
Þessu markmiði teljum við okkur hafa
náð því starfsemi Valskvenna hefur verið
mjög fjölbreytt og skemmtilegt og ávallt
mikið fjör þar sem Valskonur koma
saman. Valskonur halda fundi 1 sinni f
mánuði frá sept. til júní. Aðalfundur er
haldinn í mars ár hvert. En lítum á starfið
sl. 5 ár.
Valsdagurinn hefur ávallt verið sá
dagur sem Valskonur standa sem best
saman. Þá sameinast allar við að gera
kaffiborðið sem girnilegast og það hefur
hreinlega svignað undan krásunum.
Lengi vel var Valsdagurinn okkar eina
fjáröflunarleið.
Sú nýbreytni var tekin upp sl. sumar að
Valskonur voru með kaffisölu eftir heima-
leiki Vals í fótbolta. Reyndist þetta ágæt
fjáröflunarleið en því miður lenti þessi
vinna á fárra kvenna höndum og þökkum
við hinar þeim vel fyrir.
Miklar endurbætur voru gerðar á
skíðaskála Vals og hafa Valskonur tvisvar
notfært sér þá góðu aðstöðu sem þar er
fyrir hendi. I maí 1982 var haldinn fjöl-
skyldudagur og í des. 1984 héldu Vals-
konur jólafund í skálanum, sem lengi
verður í minnum hafður. Valskonur gáfu
gestabók í skálann, einnig voru form.
skíðadeildar afhentar 24 þús. kr. í júní
1983.
Jólafundur með jólaglöggi er árviss at-
burður hjá okkur, einnig jólaball fyrir
yngstu börnin með heimsókn jólasveina.
Valskonum var falið að sjá um árshátíð
Vals 1984 og þar sem vel tókst til, einnig
1985. Þorrablót var haldið f febr. 1984,
sem gjarnan mætti endurtaka.
Margskonar kynningar og fyrirlestrar
eru fastir liðir í starfseminni, sem við
höfum bæði gagn og gaman af.
Fyrstu árin var spiluð félagsvist af
miklum krafti, en því miður hefur ekki
verið spilað í 2 ár.
Fjórar Valskonur, Magdalena, Kristín, Sigrún og Erla.
Frá árshátíð Vals 1984. Frá vinstri: Þuríður Sölvadóttir, Helga Hafsteinsdóttir,
Ragnheiður Lárusdóttir og Hildur Guðmundsdóttir.
Nú spyrja sjálfsagt einhverjir. Hvað er
gert við peningana sem safnast? Vals-
konur hafa ekki legið á liði sínu við
endurbætur á félagsheimilinu. Gáfum við
kappa og gardínur fyrir glugga, einnig
voru gefnir skápar undir verðlaunagripi.
Ymislegt smádót hefur verið keypt í eld-
húsið, svo sem kaffikanna og hnífapör, en
betur má ef duga skal, því ýmislegt vantar
ennþá.
Valskonur hafa ávallt aðstoðað á af-
mæli Vals, svo var einnig á 75 ára afmæl-
inu sl. vor.
Eins og sjá má er starfsemi Valskvenna
mjög fjölbreytt, en við höfum nokkrar
áhyggjur hvað lítil endurnýjun er í okkar
félagi. Við viljum því hvetja allar konur
ungar sem aldnar sem tengjast Val á
einhvern hátt að starfa með okkur.
Fyrir hönd Valskvenna óska ég Knatt-
spyrnufélaginu Val til hamingju með 75
ára afmælið, með ósk um gæfu og góðan
árangur í framtíðinni.
Fyrir hönd Valskvenna
Margrét Kristjánsdóttir
VALSBLAÐIÐ 53