Valsblaðið - 01.05.1986, Page 58
Frá Pollamótinu síðastliðið sumar. Valur sigraði Völsung frá Húsavik í þessum leik með þremur mörkum gegn tveimur.
,H||ÍÍ|f
að ef rétt verður haldið á spilum næsta ár
vinnur flokkurinn aftur sæti sitt í A-riðli.
Þjálfari 2. flokks var Sigurður Dagsson.
Þó svo að sumarið 1986 verði ekki
minnisstætt Valsmönnum fyrir stóra sigra í
yngri flokkum félagsins í knattspyrnu, þá
er engin ástæða til annars en að líta með
bjartsýni til komandi ára. Þessi orð eru þó
sögð með þeim fyrirvara að æfingaað-
staða verði bætt og það ekki síðar en
næsta sumar. Æfingaaðstaða sú sem
yngri flokkum og kvenfólkinu var boðið
upp á sl. sumar var vægast sagt slæm. Þá
yrði það og mikil lyftistöng fyrir yngri
flokkana ef flestir, helst allir heimaleikir í
Islandsmóti geti farið fram á grasi í fram-
tíðinni.
A-lið 6. flokks sem hafnaði í 2. sæti á pollamótinu.
6. flokkur Vals, B-lið á Pollamótinu. Eggert er stoltur yflr
drengjunum sínum.
Reykjavíkurmeistarar 4. flokks 1986 í innanhússfótbolta. Aftari
röð frá vinstri: Sævar Tryggvason þjálfari. Helgi Jacobsen.
Friðrik Sölvi Gylfason, Dagur Sigurðsson og Ólafur I. Tryggva-
son. Fremri röð: Rafn Karlsson, Sveinn Sigfinnsson, Friðrik
Jónsson og Júlíus Axelsson.
58 VALSBLAÐIÐ