Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1925, Qupperneq 48
36
Gísli Guómundsson (Goodman), vestfirskur að
aett og kona hans Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir Sigurðsson-
ar, komu til Ameríku 1889. Voru nokkur ár í Winnipeg
og fóru síðan til Victoria og þaðan til Point Roberts og
settust að á landi bví er be>r feðgar Bent og Sigurgeir
fyrst helguðu sér. Tóku bau rétt á bví landi, þá er það
loksins fékst árið 1908, sem og aðrir landnemar. Reistu
þar bú, og sýndu verkin merki dugandi manns á furðd-
skömmum tíma. Foreldrar Sigurbjargar voru hjá henni
þar til þau dóu, Lézt faðir hennar skömmu eftir að þau
komu á tangann, en móðir hennar 191(i. Móðir Sigur-
bjargar var Björg Jónsdöttir Einarssonar og Sigríðar Guð-
laugsdóttur, sem lengi bjuggu á Miðjanesi í Reykhóla-
sveit í Barðastrandarsýslu. Björg og Sigurgeir bjuggu
um eitt skeið á Börmum í sömu sveit. Um hlíð þá sem
kend er við Barma — Barmahlíðina •— kveður Jón Thor-
oddsen þetta :
Brekkufríð er Barmahlíð
blómstrum víða sprottin
fræðir lýði fyr og síð,
— fallega smíðar drottinn.
Sigurbjörg er fædd í Mýrartungu í Reykhólasveit árið
1861. Börn þeirra Gísla eru tvær dætur, Sveinsína 37
ára, giftist Hermanni Brynjólfssyni. Býr hún nú ein á
búgarði sínum skamt frá móður sinni og hin er Herdís
29 ára. hefir hún stundað skólakenslu nokkurár, en vinn-
ur nú við skrifstofustörf í Seattle, Mann sinn misti Sig-
urbjörgl913. Litlu síðar seldi hún heimili sitt, en keypti
4£ ekru vestar á tanganum með allgóðum byggingum og
hefir búið þar síðan. Hún er góð móðir eins og hún
var góð dóttir, þvi hún annaðist móður sína, sem lifði til
að verða fjörgömul og blind, með hinni mestu snild.
Jónas Sœmundsson Jönssonar og Gróu Jónsdótt-
ur frá Grafarkoti á Vatnsnesi í Húnavatnssýslu.er fæddur
1867. Kom til Ameríku 1889. Dvaldi fyrst í Winnipeg
fór þaðan til Victoria og til Point Roberts 1904. Náði
þar í 80 ekrur af landi í félagi með Eiríki Arnasyni er